Svipmynd Markaðarins: Vefur Hollywood-stjörnur í bómull Haraldur Guðmundsson skrifar 8. júlí 2014 10:42 Marín slasaðist illa á skíðum í febrúar en hefur nú jafnað sig. Vísir/GVA „
Margir halda að það sé mest að gera hjá okkur yfir hásumarið en þetta er rólegasti tími ársins því fyrirtæki eru stór hluti af okkar viðskiptavinum og þau eru þá flest öll í sumarfríi,“ segir Marín Magnúsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri viðburða- og ferðaþjónustufyrirtækisins Practical. „Við fáum einnig mikið af erlendum og efnasterkum einstaklingum sem vilja vera í bómull og fá þjónustu allan sólarhringinn. Það hafa komið í gegnum okkur frægar stjörnur og þekkt fólk sem enginn veit af og við leggjum okkur mikið fram við að það fari ekki í blöðin.“ Marín er fædd og uppalin á Hólmavík. Hún flutti í bæinn sextán ára gömul til að fara í framhaldsskóla og fór þá meðal annars í skiptinám til Ástralíu. Nokkrum árum síðar flutti hún til Ástralíu og þá til Brisbane þar sem hún bjó í fjögur ár. „Ég er Ástralíusjúk og er með miklar tengingar þangað og fjölskyldan sem ég var hjá í skiptináminu er einmitt að koma til mín í heimsókn næstu jól,“ segir Marín. Hún lauk námi í viðskiptafræði við Queensland University of Technology með áherslu á markaðs- og almannatengsl árið 2004. Sama ár flutti hún aftur heim og stofnaði Practical. „Þetta er hark og maður er búinn að lifa tímana tvenna. Frá 2004 til 2007 var allt að gerast og flugeldasýningar alla daga en svo hrundi þessi heimur á einni nóttu eins og margt annað. Þetta hefur verið að rétta aftur úr kútnum á síðustu tveimur árum,“ segir Marín. „Í byrjun vorum við bara að róa og ná okkur í viðskipti. Svo vorum við komin um borð í skemmtiferðaskútu þar sem allt var að gerast og nánast ekki að því spurt hvað hlutirnir kostuðu. Eftir hrun vorum við komin á orrustuskip þar sem við þurftum að berjast fyrir hverjum kúnna.“ Marín nefnir fjölskylduna, hlaup og skíði þegar hún er spurð um áhugamál. „Reyndar slasaði ég mig illa á skíðum í febrúar þegar ég braut fjögur rifbein í baki á skíðasvæði í Austurríki. Ég var á spítala þar í viku og kom svo heim með sjúkraflugi og í hjólastól. Ég er er orðin nokkuð góð núna finnst mér,“ segir Marín. Hún ætlar að eyða sumarfríinu með fjölskyldunni á ferð um landið. „Ég er nýkomin frá Bandaríkjunum þar sem ég var á flakki um New York og Washington og svo um Vancouver í Kanada. Núna hlakka ég til að ferðast um landið og vera hérna á Íslandi yfir hásumarið. Svo taka við spennandi tímar í haust þar sem veturinn hjá okkur í fyrirtækinu lofar góðu.“Gunnhildur ArnaGunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans.„Marín hefur gífurlegan viljastyrk og skýra sýn. Hún tekur allt með trompi. Gott dæmi er að hlaupin urðu að maraþoni. Og hún er traust. Hún gæfi ekki upp leyndarmálin þótt hún lægi í gapastokki. Svo er hún vel jarðtengd og því er frábært að sækja til hennar ráð sem skilja hismið frá kjarnanum. Hún er alltaf á fleygiferð; hvort sem er í vinnu eða heima fyrir, og því koma gæðastundirnar þar sem hún ekur á milli funda sér vel. Þá tökum við stöðuna hvor hjá annarri – hún með mig á speaker í bílnum að sjálfsögðu. Þegar við hittumst gerast ævintýri sem verða að hressilegum minningum. Alltaf.“Jón Karl ÓlafssonJón Karl Ólafsson, forstjóri Primera Air. „Það hefur verið afskaplega gaman að fylgjast með Marín í starfi og leik. Hún hefur komið víða við í stjórnum og daglegum rekstri fyrirtækja og það er alltaf líf og fjör þar sem Marín er. Practical er frábært fyrirtæki sem hún hefur byggt upp með góðu starfsfólki. Fyrirtækið er góð lýsing á Marín sjálfri, þar sem allt byggir á góðri þjónustu og sífellt er reynt að setja punktinn yfir i-ið. Það er oft eins og góð sudoku-þraut að finna tíma með Marín, en það er alltaf þess virði.“
Mest lesið Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Rukkaðar fyrir sætin: Blöskrar græðgi vertsins, sem segir gjaldið sjálfsagt Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Fleiri fréttir Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Sjá meira
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent