Íslendingur í Mexíkó: „Menn eru alltaf viðbúnir því versta“ Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 18. apríl 2014 22:48 "Margir hér minnast skjálftans sem varð árið 1985 þegar yfir 10 þúsund fórust og eru menn því alltaf viðbúnir hinu versta.“ vísir/ap
Gríðar öflugur jarðskjálfti, 7,2 að styrkleika, skók Mexíkóborg í dag. Byggingar nötruðu og rúður brotnuðu. Skelfing greip um sig meðal íbúa sem þustu út á götur af ótta við að hús myndu hrynja.Lárus Viðar Lárusson býr í Mexíkóborg og segir fólki virkilega brugðið. „Það verða örugglega kröftugir eftirskjálftar, þessi var það stór. En maður vonar það besta,“ segir Lárus sem segir sérstakt hversu lengi skjálftinn stóð yfir. „Sumir segja 2 mínútur, en ég hef ekki fengið það staðfest.“ Hann segir ekki marga hafa verið á ferli í borginni, það sé frídagur og fólk haldi sig þá flest heima við. Þá segir hann eitthvað hafa verið um rafmagnstruflanir og lá allt farsímakerfi niðri á tímabili. „Þessir skjálftar eru öflugir. Allt nötrar og skelfur, ljósastaurar og umferðarljós svigna til og frá.“ Lárus býr með eiginkonu sinni og sonum og voru þau heima hjá sér þegar skjálftinn reið yfir að undirbúa veislu. „Við stukkum til og stóðum við burðarveggi á meðan skjálftinn reið yfir. Við eigum þrjá drengi en þeir létu sér ekki bregða. Vinir og ættingjar voru skelkaðir en það má alltaf búast við skjálftum á þessu svæði. “ Um tuttugu milljónir búa í Mexíkóborg. Árið 1985 fórust þúsundir manna í jarðskjálfta sem mældist 8,1 að styrkleika. „Margir hér minnast skjálftans sem varð árið 1985 þegar yfir 10 þúsund fórust og eru menn því alltaf viðbúnir hinu versta.“
Tengdar fréttir Öflugur skjálfti í Mexíkó Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa sem þustu út á götur af ótta við að hús myndu hrynja. 18. apríl 2014 15:39 Mest lesið Alvarlegt rútuslys í Öxnadal Innlent Losuðu stúlku úr „prísund“ við Háskólabíó Innlent Vill losna við lífverði Bjarna úr þinghúsinu Innlent Ísland orðið „pínkulítið lélegra og leiðinlegra“ Innlent Heimtaði að allir í bænum töluðu íslensku Innlent Refsing manns sem nauðgaði þroskaskertum konum milduð verulega Innlent Tónlistarmaðurinn Róbert Örn er fallinn frá Innlent Tilkynntu um ekki yfirvofandi eldgos Innlent Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Erlent Eigandi Gríska hússins: „Erum við einhver mafía?“ Innlent Fleiri fréttir Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Lést af náttúrulegum orsökum Bóluefni gegn flensu og Covid-19 langt á veg komið Macron veðjar á að Frakkar séu í áfalli Sjá meira
Öflugur skjálfti í Mexíkó Mikil skelfing greip um sig meðal íbúa sem þustu út á götur af ótta við að hús myndu hrynja. 18. apríl 2014 15:39