Hagnaður Össurar nær tvöfaldast Óli Kristján Ármannsson skrifar 30. apríl 2014 07:00 Jón Sigurðsson forstjóri Össurar. Í tilkynningu stoðtækja- og gervilimaframleiðandans Össurar til Kauphallar kemur fram að lánakjör félagsins hafi batnað. Fréttablaðið/GVA
Hagnaður Össurar á fyrsta fjórðungi þessa árs er 95,5 prósentum yfir hagnaði sama tímabils í fyrra, tæplega 11,3 milljónir Bandaríkjadala miðað við tæplega 5,8 milljónir dala í fyrra. Í krónum talið nemur hagnaður félagsins það sem af er ári rúmum 1.265 milljónum. Velta með bréf félagsins nam 13,8 milljónum króna í Kauphöll Íslands í gær og hækkaði verð þeirra um 4,3 prósent, endaði í 266 krónum á hlut. Fram kemur í tilkynningu Össurar til Kauphallar að hagnaðurinn það sem af er ári nemi níu prósentum af sölu félagsins, borið saman við sex prósent af sölu á fyrsta ársfjórðungi 2013. Sala Össurar nú nam 121 milljón Bandaríkjadala, samanborið við 97 milljónir á sama tíma 2013 og jókst um rúm 24 prósent. Þar af er innri vöxtur sagður hafa verið sex prósent. Í uppgjörinu kemur fram að nokkru munar á kostnaði milli fyrsta fjórðungs 2013 og 2014, en hann fór úr 2,2 milljónum dala í 520 þúsund dali. Munar þar mest um gengismun, en í fyrra hallaði á félagið svo nam rúmlega 1,1 milljón dala, en á fyrsta fjórðungi þessa árs skilar munurinn hagnaði upp á 330 þúsund dali. Haft er eftir Jóni Sigurðssyni, forstjóra Össurar, að niðurstöður fjórðungsins hafi verið í takt við væntingar. „Við sjáum enn einn ársfjórðunginn þar sem arðsemin er mjög góð og rekstrarhagnaður tvöfaldast á milli ára. Aðhaldsaðgerðir sem við fórum í á síðasta ári og endurhönnun á ferlum hafa jákvæð áhrif, en einnig er ánægjulegt að sjá að markaðsskilyrði á stoðtækjamarkaðnum í Bandaríkjunum eru að þróast í rétta átt.“ Jón bendir líka á að í aprílbyrjun hafi lánasamningi félagsins verið breytt og hann framlengdur um þrjú ár, eða fram til ársins 2019. Lánakjörin segir hann endurspegla sterka fjárhagslega stöðu Össurar og góðar framtíðarhorfur.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira