Vilja lækka laun forstjóra Haga um helming Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 30. apríl 2014 14:04 Örn Pálsson og Finnur Árnason. „
Stjórn Haga samþykkir að ráðningasamningur við forstjóra Haga verði tekinn til endurskoðunar þannig að mánaðarleg laun, hlunnindi og árangurstengdar þóknanir fari ekki umfram þrjár milljónir. Jafnframt verði ráðningasamningar annarra stjórnenda fyrirtækisins teknir til endurskoðunar þar sem sambærilegar greiðslur verði innan hóflegra marka.“ Þetta kemur fram í tillögu Arnar Pálssonar, framkvæmdastjóra Landssambands smábátaeigenda. „Ef ekki gengur að leiðrétta þetta með þeim hætti þá sé ég ekki aðra leið en að einfaldlega segja þessum samningum upp og auglýsa stöðurnar,“ segir Örn í samtali við Vísi, en Gildi er stærsti hluthafi Haga með 10,32 prósenta eignarhlut.Rúmlega 72 milljónir í árslaun Forstjóri Haga, Finnur Árnason, fékk 72,8 milljónir króna í laun á síðasta ári, sem gera rúmlega sex milljónir á mánuði. Samkvæmt ársreikningum Haga fékk forstjórinn 44,5 milljónir í laun og hlunnindi og 28,3 milljónir í árangurstengdar þóknanir. „Ég hef vakið máls á þessu undanfarin ár. Það er fullkomlega óeðlilegt að lífeyrissjóður standi að fyrirtækjum sem ekki hafa þokkalegt siðferði í launamálum stjórnenda,“ segir Örn.Siðferðislaust af hálfu lífeyrissjóðsins Tillaga hans snýr að ákvæði í samskipta- og siðareglum fyrir stjórn og starfsmenn Gildis. Tillagan verður borin upp á ársfundi Gildis sem haldinn verður á Grand Hóteli í kvöld. Verði tillagan samþykkt sem ályktun verður fulltrúa Gildis í stjórn Haga falið að bera fram eftirfarandi tillögu á næsta stjórnarfundi fyrirtækisins. „Sjóðurinn fjárfestir í samfélagslega ábyrgum fyrirtækjum sem fylgja lögum og reglum samfélagsins og viðurkenndum viðmiðunum um góða stjórnarhætti og viðskiptasiðferði. Sjóðurinn fjárfestir ekki í fyrirtækjum sem ofbjóða siðferðisvitund almennings með ósanngjarnri framkomu gagnvart starfsfólki s.s. varðandi kjör og stjórnunaraðferðir eða með óhófi í launamálum stjórnenda sem og öðrum rekstrarþáttum. Stjórn tekur afstöðu til slíkra mála sem upp koma og ákveður hvort selja eigi hlut sjóðsins í ljósi þeirra viðbragða sem athugasemdir við óeðlilega starfshætti fá,“ segir í tillögu Arnar og ítrekar hann í samtali við Vísi að slíkir starfshættir séu siðferðislausir. Hrein eign Gildis lífeyrissjóðs til greiðslu lífeyris eru 334 milljarðar og heildariðgjöld sjóðfélaga 13,7 milljarðar. Raunávöxtun samtryggingadeildar sjóðsins voru 5,3 prósent. Þetta kemur fram í ársskýrslu lífeyrissjóðsins 2013.
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Fleiri fréttir Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Sjá meira