Hagnaður álversins á Grundartanga um 3,2 milljarðar Haraldur Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2014 07:00 Verksmiðja Norðuráls á Grundartanga. Vísir/Vilhelm
Hagnaður af rekstri álversins á Grundartanga nam 27,6 milljónum Bandaríkjadala á síðasta ári, jafnvirði 3,2 milljarða króna. Árið 2012 skilaði reksturinn jákvæðri afkomu upp á 46,6 milljónir dala og dróst hagnaðurinn því saman um 41 prósent milli ára. „Við erum stolt af rekstri álversins og heilt á litið er uppgjörið ágætt miðað við aðstæður,“ segir Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls. Hann bendir á að álverð var talsvert lægra árið 2013 en 2012. „Við höfum rekið álverið með hagnaði síðustu árin og höfum náð miklum árangri í rekstrinum. Allar okkar lykiltölur eru mjög góðar. Þetta á við um framleiðni, öryggismál og umhverfismál,“ segir Ragnar. Samkvæmt ársreikningi Norðuráls Grundartanga ehf. fyrir árið 2013, sem fyrirtækið skilaði til ársreikningaskrár ríkisskattstjóra í síðustu viku, greiddi það 718 milljónir króna í tekjuskatt vegna hagnaðarins á árinu. „Sumir hafa sagt að hagkvæmni álvera á Íslandi byggist á lágu orkuverði. Það er fjarri sanni. Það eru gæði framleiðslunnar og forskotið sem fyrirtækin hafa sem er krítískt í vexti og viðgangi álframleiðslunnar. Raforkuverð til álvera á Íslandi er til dæmis hærra en í Miðausturlöndum, en álver þar sækja í auknum mæli inn á Evrópumarkað.“
Mest lesið Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Sjá meira