Hagnaður Arion banka jókst um 11,5 milljarða milli ára Stefán Árni Pálsson skrifar 27. ágúst 2014 19:39 Vísir/Pjetur
Hagnaður Arion banka á fyrri helmingi ársins 2014 nam 17,4 milljörðum króna eftir skatta samanborið við 5,9 milljarða króna á sama tímabili 2013 en þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Arðsemi eigin fjár var 23,4% samanborið við 8,9% á sama tímabili árið 2013. Heildareignir námu 949,0 milljörðum króna samanborið við 938,9 milljarða króna í árslok 2013. Eiginfjárhlutfall bankans í lok tímabilsins var 25,6% en var 23,6% í árslok 2013. „Afkoma bankans á fyrstu sex mánuðum ársins er mjög góð og í takt við okkar væntingar. Grunnrekstur bankans einkennist áfram af stöðugleika og fjárhagslegur styrkur bankans heldur áfram að vaxa,“ segir Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka. „Á undanförnum misserum höfum við unnið að því að auka vægi þóknanatekna í heildartekjum bankans og er ánægjulegt að sjá árangur af þeirri vinnu í þessu uppgjöri. Sala bankans á hlutum í HB Granda hf. setur mark sitt á uppgjörið með jákvæðum hætti.“ Höskuldur segir að salan á HB Granda og skráning fyrirtækisins á Aðallista Kauphallarinnar hafi verið mikilvægur áfangi fyrir bankann. „Einnig var mikilvægt fyrir hlutabréfamarkaðinn á Íslandi að öflugt sjávarútvegsfyrirtæki væri skráð á Aðallista Kauphallarinnar. Góð afkoma á tímabilinu styrkir enn frekar eiginfjárhlutfall bankans sem er nú 25,6% sem er vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bankans. Þá greiddi bankinn eigendum sínum arð á tímabilinu.“
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira