Viðskipti innlent

Fjórar milljónir í ljósleiðarafélag

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Mýrdælingar horfa til betri netþjónustu.
Mýrdælingar horfa til betri netþjónustu. Fréttablaðið/GVA
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur samþykkt að setja fjórar milljónir króna inn í óstofnað hlutafélag sem ætlar að leggja ljósleiðara á alla bæi í hreppnum.

Framlag hreppsins verður annað hvort í formi aðgangskaupa að kerfinu fyrir skrifstofu og skóla eða í formi hlutafjár.

„Skilyrði þess að framlagið verði greitt út er að takist að fullfjármagna verkefnið að öðru leyti og að almenn þátttaka verði í verkefninu í Mýrdalshreppi,“ segir í skilmálum sveitarstjórnarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×