Viðskipti innlent

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar smávægilega

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Vísitala byggingarkostnaðar er reiknuð út mánaðarlega.
Vísitala byggingarkostnaðar er reiknuð út mánaðarlega. Fréttablaðið/Pjetur
Vísitala byggingarkostnaðar lækkar um 0,1 prósent milli desember og janúar.

Á síðustu tólf mánuðum hefur vísitala byggingarkostnaðar hækkað um 2,5 prósent, , sem er 0,3 prósentustiga lækkun milli mánaða. Í desember var 12 mánaða vísitala 2,8 prósent.

Vísitalan er reiknuð um miðjan mánuðinn og var nú 118,9 stig, að því er fram kemur í nýbirtum tölum Hagstofu Íslands.

„Verð á innlendu efni hækkaði um 0,4 prósent (áhrif á vísitölu 0,1 prósent) en verð á innfluttu efni lækkaði um 0,9 prósent (-0,2 prósent),“ segir á vef Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×