Viðskipti innlent

Coscon og Eimskip horfa til enn aukins samstarfs

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Í Sundahöfn. Eimskip og Coscon skoða enn frekara samstarf.
Í Sundahöfn. Eimskip og Coscon skoða enn frekara samstarf. Fréttablaðið/GVA
Skipafraktflutningadeild kínverska skipafélagsins Coscon hefur skrifað undir samkomulag við Eimskip um aukið samstarf. Fjallað er um málið á kínverska fréttavefnum SinoShip News.

Haft er eftir Coscon að samkomulagið feli í sér aukna sameiginlega fraktflutninga, auk þess sem rætt hafi verið mögulegt samstarf í fraktflutningum í Evrópu, siglingum yfir Norðurskautið og skipasmíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×