Viðskipti innlent

VÍS semur við Nýherja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, og Finnur Oddson, forstjóri Nýherja, handsala hér samninginn.
Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS, og Finnur Oddson, forstjóri Nýherja, handsala hér samninginn. mynd/aðsend
Vátryggingafélag Íslands, VÍS, hefur samið við Nýherja um rekstur á útstöðvum upplýsingatæknikerfa og notendaþjónustu.

Öll notendaþjónusta verður hjá Umsjá Nýherja, sem er opin allan sólarhringinn, allt árið um kring. Umsjá er mönnuð reyndum  sérfræðingum þar sem megin áhersla er lögð á að ljúka þjónustu á meðan símtali stendur.

Nýherji mun einnig veita VÍS notendaþjónustu með viðveru tæknimanna á staðnum eftir því sem þörf er á.

„Markmið okkar hjá Nýherja er að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu sem gerir þeim kleift að einbeita sér að eigin kjarnastarfsemi og viðskiptavinum. Það er því okkur mikið ánægjuefni að jafn öflugt tryggingafélag og VÍS, sem á sér djúpar rætur í íslensku samfélagi, sé orðinn hluti af góðum viðskiptavinahópi okkar. Við hlökkum til farsæls samstarfs,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Nýherja.

„VÍS er stærsta tryggingafélag landsins með 40 þjónustuskrifstofum og umboðsmönnum um allt land. Það skiptir miklu máli fyrir viðskiptavini og starfsfólk að öll kerfi virki hratt og vel til að hægt sé að veita fyrsta flokks þjónustu. Með samningi við Nýherja fær VÍS öflugan samherja sem styrkir þjónustu VÍS,“ segir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri VÍS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×