Boðar endurnýjun skipaflota Eimskips Jón Júlíus Karlsson skrifar 17. ágúst 2014 20:00
Lagarfoss, nýjasta skipið í flota Eimskipafélagsins, kom í fyrsta sinn í Reykjavíkurhöfn í dag. Forstjóri Eimskips boðar endurnýjun á skipaflota félagsins.Fjölmenni var á miðbakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík í dag þegar nýjasta skip Eimskipafélagsins, Lagarfoss, kom til Reykjavíkurhafnar í fyrsta sinn. Séra Pálmi Matthíasson bað drottinn um að blessa skipið áður en því var gefið nafn og vígt með táknrænum hætti. Lagarfoss kostar Eimskipafélagið um tvo milljarða króna en það var sjósett með athöfn í Kína á síðasta ári. Skipið er um 140 metrar á lengd og 23 metrar á breidd. Burðargeta skipsins er um 12 þúsund tonn og mun Lagarfoss sigla á gulu leiðinni en meðal áfangastaða eru Þórshöfn í Færeyjum, Hamborg og Rotterdam. „Þetta skip er hraðskreiðara en önnur skip, er töluvert stærra en Selfoss, skipið sem það er að leysa af. Lagarfoss er um 150 gámaeiningum stærra með fleiri frystitengla og er mjög vel búið til að geta farið með ferskar sjávarafurðir og komið því á markaði,“ segir Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélagsins. Lagarfoss er 16. skipið í flota Eimskipafélagsins en von er á öðru nýju skipi á næsta ári. Gylfi segir að endurnýjun skipaflotans sé hafin hjá félaginu. „Flotinn hefur verið að eldast og það hefur raunar ekki verið fjárfest lengi í gámaskipum - í nýjum skipum. Við þurfum að yngja upp flotann og koma Lagerfoss er byrjunin á því,“ segir Gylfi. Að lokinni vígsluathöfn bauðst almenningi að skoða nýjasta skipið í skipaflota okkar Íslendinga sem fjölmargir nýttu sér.
Mest lesið Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira