Viðskipti innlent

Atlantsolía uppfyllir ekki enn ákvæði eldsneytislaga

Haraldur Guðmundsson skrifar
Atlantsolía rekur nítján dælustöðvar víðs vegar um landið.
Atlantsolía rekur nítján dælustöðvar víðs vegar um landið. Vísir/Hari
Atlantsolía er eina olíufélagið sem uppfyllir ekki ákvæði laga sem skylda seljendur eldsneytis til að tryggja að minnst 3,5 prósent af eldsneytissölu sé af endurnýjanlegum uppruna.

Félagið vinnur nú að því að koma upp etanól- og lífdísiltönkum og búnaði í birgðastöð Atlantsolíu í Hafnarfirði sem mun sjá um að blanda endurnýjanlegu orkugjöfunum við hefðbundið bensín og dísil.

„Það er í hönnunarferli hjá okkur ennþá en við þurfum að gera miklar breytingar á birgðastöðinni en við stefnum að því að geta farið í framkvæmdir í sumar," segir Guðrún Ragna Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Atlantsolíu.

Lögin um endurnýjanlegt eldsneyti í samgöngum á landi tóku gildi um síðustu áramót. Atvinnuveganefnd Alþingis ákvað einum mánuði áður að fresta sektarákvæði sem kveðið er á um í lögunum til 1. október. Guðrún segir að Atlantsolía muni að öllum líkindum ljúka framkvæmdunum fyrir þann tíma.

„Ef við fáum öll leyfi og allt gengur hratt og vel fyrir sig þá ættum við að ná því," segir Guðrún.

Olíufélögin gagnrýndu skamman fyrirvara laganna en þau voru samþykkt í mars á síðasta ári og tóku gildi níu mánuðum síðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×