Vill byggja húsnæði fyrir Krónuna í Hafnarfirði Haraldur Guðmundsson skrifar 13. ágúst 2014 07:00 Festi á lóðina að Flatahrauni 13 en engin starfsemi er þar í dag. Vísir/Daníel
Eignarhaldsfélagið Festi hf. vill byggja um 2.300 fermetra verslunarhúsnæði við Flatahraun í Hafnarfirði og opna þar nýja Krónuverslun. „Það er ekkert útilokað að þarna verði fleiri verslanir. Það fer eftir áhuga þeirra aðila en það er ekkert sjaldgæft að í kringum búðirnar okkar séu bakarí, fiskbúðir eða veitingastaðir,“ segir Jón Björnsson, forstjóri Festi. Skipulags- og byggingaráð Hafnarfjarðar samþykkti í síðustu viku að heimila félaginu að vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi á lóðinni Flatahrauni 13. Tvær af verslunum Krónunnar eru þegar í bænum. Önnur stendur við Reykjavíkurveg en hin við Hvaleyrarbraut. „Verslunin við Reykjavíkurveg er orðin mjög þröng og það væri ákjósanlegra að finna henni hentugra húsnæði. Henni verður því lokað en hin verður áfram á sínum stað,“ segir Jón. „En við þurfum fyrst að fá þetta samþykkt og þetta þarf að passa inn í bæjarmyndina. En málið er nú í þeim farvegi að við erum enn að senda inn teikningar og ákveða hvernig aðkoman að þessu verður fyrir bíla, reiðhjól og fótgangandi,“ segir Jón. Festi, sem er í eigu SFV slhf., keypti Kaupás ehf. að fullu af Norvik hf. í febrúar síðastliðnum og tók þá við rekstri verslana Krónunnar, Nóatúns og Kjarvals. Jón segir áform fyrirtækisins í Hafnarfirði ekki merki um að nýir eigendur ætli í auknum mæli að færa verslanir Krónunnar í stærra húsnæði. „Við erum ekkert að setja áherslu á fermetrafjöldann og að vera með stórar verslanir. Það hentar á vissum stöðum við umferðaræðar og í útjaðri byggðar þar sem er meiri atvinnustarfsemi en íbúðir. En öll skipulagsmál vísa til þéttari byggðar og við rekum einnig búðir í þéttri byggð og ætlum að halda því áfram.“
Mest lesið Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira