Hin fyrstu jól 1. nóvember 2014 12:00
Það dimmir og hljóðnar í Davíðsborg í dvala sig strætin þagga í bæn hlýtur svölun brotleg sál frá brunni himneskra dagga öll jörðin er sveipuð jólasnjó og jatan er ungbarnsvagga. Og stjarna skín gegn um skýjahjúp með skærum lýsandi bjarma og inn í fjárhúsið birtan berst og barnið réttir út arma en móðirin sælasti svanni heims hún sefur með bros um hvarma Og hjarðmaður birtist um húsið allt ber höfga reykelsisangan í huga flytur hann himni þökk og hjalar við reifastrangann svo gerir hann krossmark, krýpur fram og kyssir barnið á vangann.Texti: Kristján frá Djúpalæk. Lag: Ingibjörg Þorbergs.
Jólalög Mest lesið Sálmur 89 - Sjá morgunstjarnan blikar blíð Jól Grýlukvæði Eggerts Ólafssonar Jól Verður ekki mikið vör við jólahátíðina Jól Afslöppuð aðventa - svona minnkar þú desemberstressið Jólin Gott er að gefa Jólin Yfir fannhvíta jörð Jól Fylking engla Jól Allir vilja nýtt bros fyrir jólin Jól Stöðumælavörður sektaði jólasvein Jól Merkimiðar fyrir jólapakkana Jól