Viðskipti innlent

Hver vaktar vörðinn?

Skjóðan skrifar
FME á að fylgjast með því að farið sé að leikreglum í þessum stórræðum.
FME á að fylgjast með því að farið sé að leikreglum í þessum stórræðum.
Stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins (FME) hyggst ekki sækjast eftir endurskipun. Fjölskylda stjórnarformannsins varð fyrir ónæði af hálfu fjölmiðlamanna eftir að opinskátt varð að stjórnarformaðurinn hafði hagnast gríðarlega á hlutafjáreign í Skeljungi, sem geymd var á bak við nokkur lög eignarhaldsfélaga. Ekki vill stjórnarformaðurinn kannast við að hafa átt önnur samskipti eða viðskipti við Skeljung en að kaupa þar eldsneyti, rétt eins og hver annar bíleigandi.

Nú er ekkert að því að hlutabréfaeign sé í eignarhaldsfélögum og heldur ekki að búin séu til nokkur lög eignarhaldsfélaga. Fyrir því geta verið ýmsar ástæður og flestar lögmætar.

Öllu máli skiptir hins vegar að aldrei leiki vafi á því hver hinn endanlegi eigandi er (e. beneficial owner). Þetta þekkja bankastarfsmenn sem séð hafa um fjárfestingar fyrir viðskiptavini bankanna. Strangar reglur gilda um að ávallt verði að kanna uppruna fjármuna sem varið er til fjárfestinga. Tilgangurinn með slíkum reglum er að koma í veg fyrir peningaþvætti, sem yfirleitt er stundað í þrenns konar tilgangi; að komast undan skattgreiðslum, skjóta sér undan reglum hlutabréfamarkaða t.d. um yfirtökuskyldu og loks til að hreinsa illa fengið fé.

Það eru fjármálaeftirlitin sem fylgjast með því að bankar fari eftir þessum reglum. Þess vegna er sérlega óheppilegt þegar lítur út fyrir að stjórnarformaður FME reyni að fela eignarhald sitt á verðmætri hlutabréfaeign. Einnig er óheppilegt að um er að ræða hlutabréf í fyrirtæki sem Íslandsbanki, fyrrverandi vinnuveitandi stjórnarformannsins, leysti til sín og ráðstafaði. Fyrrverandi starfsmenn bankans virðast sumir hafa hagnast vel á þeirri ráðstöfun.

Fram hefur komið að bankinn kærði stjórnarformanninn til FME og Sérstaks saksóknara við starfslok fyrir að taka upplýsingar í óleyfi út úr bankanum. Ekki virðist sú kæra hafa vakið sama áhuga og verkgleði á þeim bæjum og kærur á hendur fyrrverandi eigendum og stjórnendum íslenskra fjármálafyrirtækja sem féllu í hruninu.

FME er ætlað að hafa eftirlit með því að farið sé að reglum á íslenskum fjármálamarkaði en hefur allt frá hruni einbeitt sér að starfsemi fjármálafyrirtækja fyrir hrun en ekki þeirra sem starfa á íslenskum fjármálamarkaði í dag. Frá hruni hafa mörg helstu fyrirtæki landsins verið yfirtekin af bönkum og ráðstafað til nýrra eigenda. Bankastarfsmenn hafa dúkkað upp sem auðmenn í kjölfar endurskipulagningar og ráðstöfunar á þessum fyrirtækjum. Öðrum virðist hafa verið ráðstafað til handvalinna vildarvina bankanna.

FME á að fylgjast með því að farið sé að leikreglum í þessum stórræðum. En hver fylgist með FME?



Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.


Tengdar fréttir

Ekki sama hver lánar

Hér á landi hefur alltaf skipt miklu máli hvort það er Jón eða séra Jón sem á í hlut. Í síðustu viku kom það fram hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra í umræðum á Alþingi að verklagsferlar hafi ekki verið hefðbundnir þegar Seðlabankinn lánaði Kaupþingi 500 milljónir evra (76 milljarða króna) með veði í danska bankanum FIH í byrjun október 2008.

Landspítali eða RÚV?

Heilbrigðiskerfið á Íslandi virðist vera að molna. Brostin eru á verkföll lækna, það er þeirra sem enn eru eftir á Íslandi, því mikill fjöldi lækna og annars heilbrigðisstarfsfólks hefur þegar yfirgefið landið og gengur nú til starfa í Noregi, Svíþjóð og víðar. Margir læknar virðast kjósa að koma alls ekki heim úr framhaldsnámi erlendis. Biðlistar í heilbrigðiskerfinu lengjast og víða úti á landi er varla boðið upp á fulla heilbrigðisþjónustu.

Vaxtaokrið er myllusteinn um háls Íslands

Íslensk fyrirtæki geta ekki keppt á jafnréttisgrundvelli við erlend fyrirtæki. Á það jafnt við um samkeppni á erlendum mörkuðum og samkeppni á innanlandsmarkaði. Löggjafinn hefur reynt að styrkja samkeppnisstöðu innlendra matvælaframleiðenda gagnvart innflutningi með hvers kyns viðskiptahömlum og tollavernd. Jafnvel hefur verið gengið svo langt að undanskilja einstaka þætti innlendrar matvælaframleiðslu almennum samkeppnisreglum.

Heilræði til RÚV

Ríkisútvarpið (RÚV) er í slíkum fjárhagskröggum að það hefur neyðst til að leita á náðir kröfuhafa sinna og semja um frestun til áramóta á afborgun af skuldabréfi, sem var á gjalddaga í síðustu viku. Svo sem við var að búast setti Kauphöllin skuldabréf RÚV á athugunarlista við þessi tíðindi enda geta þau bent til þess að RÚV sé ógjaldfært fyrirtæki sem stefnir í gjaldþrot.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×