Hagnaðurinn nam 10,5 milljörðum króna Óli Kristján Ármannsson skrifar 31. október 2014 07:00
Eftir skatta nemur hagnaður Icelandair Group á þriðja ársfjórðungi 2014 85,8 milljónum Bandaríkjadala, eða sem svarar 10.464 milljónum íslenskra króna. Miðað við sama tíma í fyrra eykst hagnaðurinn um 31,4 prósent, en þá var hann 65,3 milljónir dala, eða sem svarar tæpum átta milljörðum króna miðað við gengi dollars í gær.Björgólfur Jóhannsson„Tæplega 970 þúsund farþegar ferðuðust með félaginu í fjórðungnum og hafa þeir aldrei verið fleiri. Aukin umsvif í millilandaflugi ásamt mikilli fjölgun ferðamanna til Íslands höfðu jákvæð áhrif á aðra starfsemi samstæðunnar,“ segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, í tilkynningu til Kauphallar. Fram kemur að framboð í leiðakerfi flugfélagsins hafi verið aukið um 19 prósent frá fyrra ári. Sætanýting er sögð hafa verið 84,2 prósent á fjórðungnum, um 0,7 prósentum betri en á þriðja fjórðungi 2013. Hagnaður Icelandair Group fyrir vexti, skatta, afskriftir og niðurfærslur (EBITDA) nam 123,9 milljónum dala (15,1 milljarði króna) samanborið við 102,2 milljónir dala (12,5 milljarða króna) árið áður. Fram kemur að heildartekjur félagsins hafi aukist um 13 prósent milli ára og að eiginfjárhlutfall félagsins hafi verið 46 prósent í lok september. Félagið gerir ráð fyrir tólf prósenta aukningu í millilandaflugi á næsta ári.
Mest lesið Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Viðskipti innlent Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Viðskipti innlent Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Viðskipti innlent Ástarsaga: Markmiðið að allir verði ástfangnir af LOVE Atvinnulíf Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Sjá meira