Afþreying kostar skildinginn Freyr Bjarnason skrifar 11. september 2014 08:00 Latibær
Ýmiss konar afþreying er í boði á höfuðborgarsvæðinu fyrir barnafjölskyldur. Á meðal þess sem hægt er að gera er að skella sér í leikhús, keilu eða bíó. Dýrast er að fara á nýju barnaleikritin Línu Langsokk og Latabæ á meðan ódýrast er að fara í bíó. Taka skal fram að ekki fylgir með í tölunum kostnaðurinn við mat, drykki og sælgæti sem getur fylgt afþreyingunni og því getur hann hækkað umtalsvert þegar um vísitölufjölskyldu, tvo fullorðna og tvö börn, er að ræða.Lína Langsokkur Í Borgarleikhúsinu verður á laugardag frumsýndur söngleikurinn Lína Langsokkur. Lína á fastan sess í hugum flestra barna og eiga mörg þeirra vafalítið eftir að biðja foreldra sína um miða á sýninguna.Einn miði 4.250 krónurFjölskyldan 17.000 krónurLatibær Stærsta barnasýning Þjóðleikhússins í vetur, Latibær, verður frumsýnd á sunnudag. Íslenskir krakkar hafa margir hverjir alist upp við að horfa á Latabæ í sjónvarpinu og eiga þeir örugglega eftir að flykkjast á sýninguna með foreldrum sínum.Einn miði 3.400-4.200 kr.Fjölskyldan 13.600-16.800 kr.Trúðleikur Trúðleikur í Tjarnarbíói var fyrst sýndur í Frystiklefanum á Rifi við mjög góðar undirtektir. Núna verður leikurinn endurtekinn í Tjarnarbíói í Reykjavík.Einn miði 2.000-2.900kr.Fjölskyldan 8.000-11.600 kr.Langafi prakkari Leikritið Langafi prakkari í Möguleikhúsinu er byggt á sögum Sigrúnar Eldjárn. Verkið hefur verið sýnt um 300 sinnum frá því það var frumsýnt árið 1999.Einn miði 2.500 kr.Fjölskyldan10.000 kr.Keila Það getur verið gaman að skella sér í keilu en það er langt í frá ókeypis því hver mínúta kostar 90-108 krónur.Keiluhöllin í Öskjuhlíð 25 mínútur 2.250 kr (kvöld- og helgarverð).Fjölskyldan 9.000 kr.Keiluhöllin Egilshöll 25 mínútur 2.700 kr. (kvöld- og helgarverð).Fjölskyldan 10.800 kr.Bíó Teiknimyndin Flugvélar: Björgunarsveitin er sýnd í Sambíóunum. Börnin kynntust áburðarflugvélinni Dusty í Disney-myndinni Flugvélar sem var frumsýnd í ágúst í fyrra. Núna er komið að framhaldsmyndinni.Einn miði 700-1.300 kr.Fjölskyldan 4.000 kr (ef annað barnið er undir 8 ára).
Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent