Viðskipti innlent

Gætu fjármagnað leit að gulli í Þormóðsdal

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjölmörg fyrirtæki, bæði innlend og erlend, hafa komið að gullleit hér á landi. Sýnin úr borholukjörnunum úr Þormóðsdal voru tekin fyrir síðustu aldamót.
Fjölmörg fyrirtæki, bæði innlend og erlend, hafa komið að gullleit hér á landi. Sýnin úr borholukjörnunum úr Þormóðsdal voru tekin fyrir síðustu aldamót. Vísir/Vilhelm
Eigendur Málmís ehf. eiga í viðræðum við erlenda fjárfesta sem hafa áhuga á að fjármagna gullleit hér á landi. Viðræðurnar hófust í febrúar síðastliðnum en ákvörðun um fjármögnunina gæti samkvæmt heimildum Markaðarins legið fyrir um næstu mánaðamót.

Málmís er í eigu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands, Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og Orkustofnunar. Dótturfélag þess, Melmi ehf., fékk í síðasta mánuði framlengingu á leyfi til leitar og rannsókna á málmum á níu svæðum hér á landi. Melmi er einnig í eigu breska félagsins Gold Island Ltd. Það vill samkvæmt heimildum selja sinn 49 prósenta hlut til félags í eigu fjárfestanna sem nú sýna gullleitinni áhuga. Ekki hafa fengist upplýsingar um hverjir þeir eru en félag fjárfestanna er aftur á móti sagt skráð á Bretlandi.

„Við höfum ætlað að loka þessum samningi í nokkurn tíma svo það verði hægt að láta reyna á verkefnið áfram. Þess vegna vorum við að sækja um að fá framlengingu á þessum heimildum sem Melmi hefur til leitarinnar,“ segir Reinhard Reynisson, stjórnarformaður Málmís og framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga.

Reinhard segir að það sé fyrst og fremst horft til rannsókna og leitar í Þormóðsdal í Mosfellssveit en nefnir einnig Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu.

Leitað hefur verið að gulli í Þormóðsdal, með hléum, í yfir hundrað ár. Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMÍ) greindi í febrúar í fyrra frá því að endurskoðuð greining á sýnum úr borholukjörnum úr dalnum hefði leitt í ljós að gullvinnsla á svæðinu gæti verið vænleg. Melmi hafði þá borað í dalnum og málmurinn mælst um 400 grömm í hverju tonni af bergi.

Þorsteinn I. Sigfússon, forstjóri NMÍ, segir magnið í Þormóðsdal vera með því meira sem gerist. Erlendis sé gull unnið úr bergi þegar mælingar sýni einungis fjögur grömm á tonnið. Hann segir stofnunina fagna því að leyfi til gullleitar í Þormóðsdal og víðar hafi verið endurnýjað.

„Hingað til hafa erlendir aðilar fjárfest í gullleitinni og ríkisfé ekki verið notað til hennar. Mikilvægt hefur verið að þekkingin glatist ekki og að íslenskir jarðfræðingar komi að henni,“ segir Þorsteinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×