Flytja inn flughermi fyrir Airbus-þyrlur Haraldur Guðmundsson skrifar 2. júlí 2014 08:15 Þyrlan Airbus AS350 setti hæðarmet árið 2005 þegar henni var lent á toppi Everest-fjalls. Mynd/Airbus
Hópur íslenskra fjárfesta sem stendur á bak við Mid Atlantic Sim Center ehf. hefur keypt flughermi fyrir Airbus AS350-þyrlur. Fyrirtækið ætlar að opna alþjóðlega þjálfunarmiðstöð hér á landi en flughermirinn verður sá fyrsti sinnar tegundar í Evrópu. „Viðræður við fyrirtæki sem reka þessar þyrlur víðs vegar um heim eru þegar farnar af stað,“ segir Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.Halldór ÞorkelssonMid Atlantic Sim Center hefur gert samstarfsamning við spænska fyrirtækið Indra sem framleiðir flugherminn. Áform fyrirtækisins gera ráð fyrir að þjálfunarmiðstöðin verði opnuð á fyrri hluta 2016. Ljóst er að verkefnið hleypur á hundruðum milljóna króna en Halldór vill á þessu stigi ekki fara nánar út í heildarkostnaðinn. „Þetta er umtalsverð fjárfesting og þess vegna höfum við unnið töluvert lengi að þessu. Þetta er engu að síður á byrjunarstigi.“ Að sögn Halldórs er einungis til einn flughermir fyrir AS350-þyrlur í heiminum. Hann er í Texas í Bandaríkjunum og ekki sömu kostum búinn og sá sem er væntanlegur hingað til lands. „Við sáum því tækifæri á þessum markaði og erum að reyna að hreyfa okkur eins hratt og við getum. Þetta er álitlegt verkefni ef allt gengur eftir í gjaldeyrisskapandi atvinnustarfsemi á Íslandi,“ segir Halldór. Hann reiknar með að þorri viðskiptavina fyrirtækisins komi frá Evrópu en gerir einnig ráð fyrir fyrirtækjum frá Kanada og austurströnd Bandaríkjanna. Halldór segir fyrirtækið eiga í viðræðum um húsnæði undir starfsemina. „Við erum ekki í neinni stöðu til að gefa það upp enn þá en ég get sagt að við erum að horfa til staðsetningar á Reykjavíkursvæðinu.“ Fyrirtækið hefur einnig gert samning við Indra sem gerir ráð fyrir öðrum flughermi í þjálfunarmiðstöðinni. Sá er fyrir þyrlur af gerðinni Airbus AS355 en enginn slíkur hermir er til í heiminum. „Það eru ekki til nauðsynleg grunngögn til að setja slíkt tæki saman en við höfum hug á því að koma að slíku þróunarverkefni sem vonandi yrði að flughermi í okkar aðstöðu.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira