Viðskipti innlent

Rukkaðir vegna greiðslna sem tókust ekki

Bjarki Ármannsson skrifar
Truflunin kom meðal annars niður á notendum dælulykils Atlantsolíu.
Truflunin kom meðal annars niður á notendum dælulykils Atlantsolíu. Vísir/Vilhelm
Viðskiptavinir nokkurra íslenskra fyrirtækja urðu varir við það um helgina að gjaldfært var á greiðslukort þeirra vegna greiðslna sem tókust ekki.

Um er að ræða greiðslur sem framkvæmdar voru á stuttu tímabili síðastliðinn laugardag. Meðal annars kom þetta niður á viðskiptavinum Atlantsolíu, sem auglýst hafði sérstakt tilboð þennan dag.

„Það komu upp truflanir í samskiptum milli aðila sem sjá um að þjónusta dælulykil Atlantsolíu og annarra sambærilegra aðila,“ segir Kristinn Wium, rekstrarstjóri hjá fyrirtækinu Point, sem veitir þjónustu með posa og greiðslusöfnun. Hann segir að enn liggi ekki alveg ljóst fyrir hvað hafi gerst.

„Þetta var tíu mínútna tímabil þar sem truflanir voru í heimildagjöfinni hvað þessa lykla varðar. Það er verið vinna í að greina hvað kom upp.“

Kristinn getur ekki sagt að svo stöddu hvaða fleiri fyrirtæki truflunin hafði áhrif á, né hversu marga viðskiptavini.

Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu, segir að leitast verði við að koma til móts við þá viðskiptavini sem fengu ekki réttan afslátt vegna truflunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×