Viðskipti innlent

Hótel Óðinsvé í eigu Regins

Haraldur Guðmundsson skrifar
Helgi S. Gunnarsson er forstjóri Regins fasteignafélags.
Helgi S. Gunnarsson er forstjóri Regins fasteignafélags.
Forsvarsmenn Regins fasteignafélags gengu í gær frá kaupum dótturfélags Regins á Hótel Óðinsvéum hf. sem var áður í eigu Gamma ehf.

Stjórnir beggja félaga höfðu áður samþykkt eigendaskiptin. Dótturfélagið, Reginn atvinnuhúsnæði ehf., á nú fasteignirnar Þórsgötu 1 og Lokastíg 2 í miðbæ Reykjavíkur. Þær eru samtals um 2.200 fermetrar að stærð.

Hótel Óðinsvé er fjögurra stjörnu hótel með 50 herbergi. Veitingastaðurinn Snaps er einnig rekinn á Þórsgötu 1 sem og smurbrauðsstofan Brauðbær. Í tilkynningu Regins um eigendaskiptin segir að engar breytingar verði á rekstri fyrirtækjanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×