Flugvél Loftleiða breytt í eitt stórt fyrsta farrými Haraldur Guðmundsson skrifar 20. júní 2014 07:15 La Compagnie hefur nú merkt sér farþegaþotu Loftleiða. Hún tekur 74 sæti eftir breytingarnar. Mynd/Loftleiðir Icelandic
Loftleiðir Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur gert fimm ára samning um leigu á farþegaþotu til franska flugfélagsins La Compagnie. Flugfélagið ætlar að nota vélina í áætlunarflug á milli Parísar og Newark í Bandaríkjunum og eingöngu selja ferðir á fyrsta farrými. „Um borð í vélinni verða eingöngu svokölluð „lie-flat“ sæti sem hægt er að leggja niður svo farþegar geti sofið þægilega í þeim. Vélin verður því öll hin glæsilegasta að innan,“ segir Sigfús Ólafsson, markaðsstjóri Loftleiða Icelandic. Farþegaþotan sem um ræðir er af gerðinni Boeing 757-200. Hún er nú í Indianapolis í Bandaríkjunum þar sem unnið er við breytingar á vélinni. La Compagnie ætlar að hefja áætlunarflugið í júlí. „Vélin fer inn á franskt flugrekendaskírteini og flugfélagið mun reka hana í sínum flota en fá viðhaldsþjónustu frá okkur,“ segir Sigfús. Hann segir flugvirkja Icelandair í París og þjónustuaðila fyrirtækisins í Newark koma til með að sjá um viðhald á vélinni. Mörg erlend flugfélög buðu áður upp á ferðir yfir Atlantshafið þar sem eingöngu voru í boði sæti á fyrsta farrými. Á meðal þeirra voru Silverjet, MAXjet og L'Avion. Þau gáfust þó upp á ferðunum þegar alþjóðlega fjármálakreppan skall á. La Compagnie ætlar aftur á móti að bæta annarri vél við flota sinn. Sigfús segir bæði fyrirtækin áhugasöm um að kanna möguleikann á því að hún komi einnig frá Loftleiðum. Samstarfinu fylgi mikil verkfræði- og eftirlitsvinna og að sú vinna fari öll fram í Keflavík. „Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur því við erum orðnir miklir sérfræðingar í þessum geira. Við höfum verið með „VIP“-þotu sem hefur farið með sterkefnaða Ameríkana í heimsreisur. Það er orðinn mikilvægur þáttur í tekjuöflun okkar.“ Sigfús segir vél Loftleiða hafa farið í yfir tuttugu heimsreisur á síðustu tíu árum. Flogið er með íslenskri áhöfn; flugfreyjum, hlaðmönnum, flugvirkjum og kokkum. „Við verðum áfram á þeim vettvangi og munum einnig bæta þessum „lie-flat“-sætum í þá vél.“
Mest lesið B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Samstarf Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Viðskipti innlent Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Samstarf Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Neytendur Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Samstarf Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Viðskipti innlent Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Viðskipti innlent Fleiri fréttir B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Sjá meira