Viðskipti innlent

Bóksölurisinn WHSmith vill opna verslun í Leifsstöð

Haraldur Guðmundsson skrifar
WHSmith selur meðal annars bækur, dagblöð, lestölvur, leikföng og gjafakort.
WHSmith selur meðal annars bækur, dagblöð, lestölvur, leikföng og gjafakort. Mynd/WHSmith
Breska bókaverslanakeðjan WHSmith hefur óskað eftir verslunarrými í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Starfsmaður fyrirtækisins var samkvæmt heimildum Fréttablaðsins viðstaddur kynningarfund Isavia vegna forvals á verslunar- og veitingarekstri í brottfararsal flugstöðvarinnar þann 19. mars síðastliðinn. Hann hefur einnig sent stjórnendum nokkurra bókaútgáfna hér á landi tölvupósta þar sem óskað er eftir upplýsingum fyrir úttekt breska fyrirtækisins á íslenska bókamarkaðinum.

Isavia, sem rekur Keflavíkurflugvöll, kynnti í vetur áform um breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar. Fyrirtækið efndi til forvals í mars þar sem fyrirtækjum í verslunar- og veitingarekstri var boðið að sækja um aðstöðu í flugstöðinni. Forvalinu lýkur í haust og breytingum á salnum á að ljúka næsta vor.

Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugstöðvarinnar, vill ekki staðfesta hvort WHSmith sé þátttakandi í forvalinu. Isavia mun að hans sögn ekki tjá sig um hvaða fyrirtæki taka þátt.

„Það er mikill áhugi erlendis frá og erlendir aðilar hafa sent inn umsóknir um aðstöðu í flugstöðinni,“ segir Hlynur.

„Frestur til að skila inn hugmyndum og tilboðum rennur út 25. júní næstkomandi. Næstu tvo til þrjá mánuðina á eftir förum við á samningsstigið og munum þá skoða öll tilboðin og setjast niður með þeim sem við teljum álitlegasta,“ segir Hlynur.

Eymundsson hefur rekið bókaverslun í flugstöðinni síðastliðin ár. Samningar um verslunarrekstur þar renna út í lok þessa árs. Engar upplýsingar fengust um það hvort Eymundsson væri þátttakandi í forvali Isavia þar sem ekki náðist í stjórnendur fyrirtækisins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×