Viðskipti innlent

Frjálsi lífeyrissjóðurinn valinn bestur

Frjálsi lífeyrissjóðurinn var verðlaunaður af tímaritinu IP Real Estate.
Frjálsi lífeyrissjóðurinn var verðlaunaður af tímaritinu IP Real Estate. mynd/Ip real Estate
Frjálsi lífeyrissjóðurinn hefur verið verðlaunaður fyrir góða frammistöðu í fasteignafjárfestingum. Tímaritið IPE Real Estate veitti verðlaunin.

Sérstök verðlaun eru veitt fyrir ensku-, þýsku-, frönskumælandi lönd. Auk verðlauna fyrir hin Norðurlöndin.

Frjálsi lífeyrissjóðurinn hlaut verðlaunin í flokki annarra Evrópuþjóða.

Lífeyrissjóðurinn hlaut verðlaunin fyrir að bregðast tímanlega við breyttu efnahagslegu umhverfi með því að auka vægi fasteigna í eignasafni sínu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×