Starfsfólk Landsbankans flúði myglusvepp Haraldur Guðmundsson skrifar 26. maí 2014 08:00 Mikil mygla fannst í húsnæði bankans við Hafnarstræti 8 og þar þurfti meðal annars að rífa niður loftið.
Um 80 starfsmenn Landsbankans þurftu að yfirgefa starfsstöðvar sínar þegar myglusveppur fannst í höfuðstöðvum bankans og á skrifstofum hans í Landsímahúsinu við Austurvöll á síðasta ári. Landsbankinn rekur starfsemi í sextán húsum. Þar af eru fjórtán í miðborginni og flest þeirra eru hluti af höfuðstöðvum bankans við Hafnar- og Austurstræti. Myglan fannst í þremur húsum í Hafnarstræti, tveimur í Austurstræti og á skrifstofunum í Landsímahúsinu. „Starfsfólk bankans fór að rekja tíð veikindi til húsnæðisins og því byrjuðum við á að kaupa myglupróf. Þá kom í ljós mygla á einum eða tveimur stöðum og eftir það fundum við meira. Á endanum þurfti meðal annars að flytja og dreifa öllu áhættustýringarsviði bankans, um fimmtíu manns, á nokkra staði hér í höfuðstöðvunum, en deildin er staðsett í fjórum húsnúmerum,“ segir Valgeir Valgeirsson, forstöðumaður eignasviðs Landsbankans. „Starfsmennirnir í Landsímahúsinu, um þrjátíu manns, voru fluttir til innan þess húss og við fórum strax í að losa okkur við sveppinn.“ Bankinn leigir allar þær byggingar sem um ræðir. Eigendur þeirra þurftu að sögn Valgeirs að fara í miklar framkvæmdir við að rífa niður loft og veggi og eitra fyrir sveppinn. „Framkvæmdunum lauk snemma á þessu ári og sveppurinn hefur ekki komið upp í öðrum húsum síðan,“ segir Valgeir og bætir við að framkvæmdirnar hafi tekið nokkra mánuði. „Við teljum því að þetta sé komið í lag en við getum aldrei verið viss. Húsin eru nefnilega gömul, byggð frá 1924 til 1970, og mörg hafa lekið á einum eða öðrum tíma sem getur leitt til myglusvepps.“ Valgeir segir starfsfólk bankans hafa fundið fyrir einkennum sem oft eru tengd við myglusvepp eins og hausverk og sljóleika.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Sky ætlar að festa kaup á ITV Viðskipti erlent Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Viðskipti erlent Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Viðskipti innlent Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Fleiri fréttir Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Sjá meira