Viðskipti innlent

Ísfélagið brennir úrgangsolíu og fær áminningu

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
 Ísfélagið vill halda áfram að spara í verksmiðju sinni á Þórshöfn með úrgangsolíu sem Umhverfisstofnun segir ólöglega.
Ísfélagið vill halda áfram að spara í verksmiðju sinni á Þórshöfn með úrgangsolíu sem Umhverfisstofnun segir ólöglega. Fréttablaðið/Pjetur
Umhverfisstofnun veitti Ísfélagi Vestmannaeyja áminningu fyrir að nota úrgangsolíu í fiskimjölsverksmiðju útgerðarfyrirtækisins á Þórshöfn á Langanesi.

Áminningin var veitt í janúar eftir að Umhverfisstofnun barst ekki staðfesting á að brennslu úrgangsolíu væri hætt.

Vísaði stofnunin til hagsmuna almennings af heilnæmu umhverfi. Þetta kemur fram í úrskurði Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála en þangað kærði Ísfélagið áminninguna frá Umhverfisstofnun.

Ísfélagið vildi að tillit væri tekið til þess að endurunna olían, sem málið snýst um, væri 20 prósentum ódýrari en svartolía og að fyrirtækið sparaði 29 milljónir króna á ári með notkun hennar, sem yrði í náinni framtíð í samræmi við íslensk lög.

Umhverfisstofnun minnti á að ekki hefði verið gripið til annarra þvingunarúrræða gagnvart Ísfélaginu en áminningar.

Þá hafi stofnunin stöðvað brennslu á olíuúrgangi hjá öllum öðrum rekstraraðilum fiskimjölsverksmiðja á landinu.

Úrskurðarnefndin hafnað kröfu Ísfélagsins og því stendur áminningin sem veitt var félaginu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×