Viðskipti innlent

Kortavelta ferðamanna jókst

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fjöldi erlendra ferðamanna sem hingað komu í mars jókst um 35 prósent frá mars í fyrra.
Fjöldi erlendra ferðamanna sem hingað komu í mars jókst um 35 prósent frá mars í fyrra. Vísir/Vilhelm
Erlendir ferðamenn greiddu alls 6,8 milljarða króna með greiðslukortum sínum hér á landi í mars. Það var aukning um 27,8 prósent miðað við sama mánuð árið 2013.

Þetta kemur fram í tilkynningu Rannsóknaseturs verslunarinnar um greiðslukortaveltu erlendra ferðamanna í mánuðinum.

Þar segir að hver erlendur ferðamaður hafi að meðaltali greitt um 103 þúsund krónur með greiðslukortum fyrir vörur og þjónustu hér á landi í mars. Útgjöld á hvern ferðamann drógust aftur á móti saman um 5,6 prósent samanborið við mars 2013.

„Þá jókst velta í þeim flokki sem nær til ferðamannastaða og sýninga um 105 prósent og var alls 62 milljónir króna. Ætla má að þar skipti nokkru að hafin var innheimta aðgangseyris á Geysissvæðið,“ segir í tilkynningu Rannsóknaseturs verslunarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×