Landsbankinn opnar fyrirtækjamiðstöð Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. apríl 2014 07:00 Tengiliðir, símanúmer og netföng haldast óbreytt þótt fyrirtækjaþjónusta Landsbankans færist í Borgartún. Fréttablaðið/Daníel
Landsbankinn opnar í dag þjónustumiðstöð fyrir minni og meðalstór fyrirtæki að Borgartúni 33 í Reykjavík. Þangað hafa flust allir starfsmenn fyrirtækjaþjónustu útibúa bankans á höfuðborgarsvæðinu. Breytingunum fylgja ekki uppsagnir starfsfólks, að því er fram kemur í tilkynningu. Með breytingunum nái bankinn þó fram hagræðingu í rekstri um leið og þjónusta við viðskiptavini eflist. „Fyrir í Borgartúni 33 eru útibú bankans, Landsbréf hf. og Bíla- og tækjafjármögnun Landsbankans,“ segir í tilkynningunni. Nýtt fyrirkomulag er sagt gefa bankanum kost á að bjóða fyrirtækjum umfangsmeiri ráðgjöf en áður, aðgengi að sérfræðingum verði betra og hægt að afgreiða erindi hraðar. Þá kemur fram að heimsóknir til fyrirtækja verða einnig stór hluti starfsemi fyrirtækjamiðstöðvarinnar í Borgartúni. „Fyrirtæki munu halda sínum tengiliðum, símanúmer og netföng haldast óbreytt, bankanúmer einnig og áfram verður hægt að nota útibú bankans á höfuðborgarsvæðinu sem fundarstaði. Allt kapp er því á það lagt að dagleg starfsemi viðskiptavina raskist ekki á neinn hátt,“ segir í tilkynningu bankans. Þorsteinn Stefánsson, sem áður gegndi stöðu útibússtjóra í Grafarholti, veitir fyrirtækjamiðstöðinni forstöðu. Undir hans stjórn starfa þrír svæðisstjórar. Þau eru Arnheiður Klausen Gísladóttir, sem sinnir Austurbæ, Miðborg, og Vesturbæ; Yngvi Óðinn Guðmundsson, sem sinnir Hafnarfirði og Kópavogi; og Friðgeir Magni Baldursson, sem annast Breiðholt og Grafarholt.
Mest lesið Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Fleiri fréttir Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Sjá meira