Viðskipti innlent

159 þúsund farþegar í mars

Bjarki Ármannsson skrifar
Icelandair flutti 159 þúsund farþega í millilandaflugi í mars.
Icelandair flutti 159 þúsund farþega í millilandaflugi í mars. Vísir/Anton
Fjöldi farþega Icelandair í millilandaflugi í marsmánuði hækkaði um tíu prósent milli ára. Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair Group.

Félagið flutti í síðasta mánuði 159 þúsund farþega í millilandaflugi. Framboðsaukning til Evrópu nam fimm prósentum en framboðsaukning til Norður-Ameríku 28 prósentum. Meðal annars stafar sú aukning af því að flug hófst til kanadísku borgarinnar Edmonton.

Sætanýting hjá félaginu nam 72 prósentum og dróst saman um 2,1 prósentustig milli ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×