Viðskipti innlent

Hægir á aukningu íbúðalána

Bjarki Ármannsson skrifar
Ný útlán hafa lækkað töluvert síðan í nóvember 2013.
Ný útlán hafa lækkað töluvert síðan í nóvember 2013. Vísir/Vilhelm
Dregið hefur talsvert úr aukningu nýrra íbúðalána bankanna á síðustu mánuðum. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans.

Ný íbúðalán voru veitt fyrir rúma 140 milljarða króna á tímabilinu frá janúar 2013 til febrúar 2014. Ný útlán voru á bilinu tíu til tólf milljarðar króna í hverjum mánuði fram í nóvember 2013 en hafa síðan lækkað töluvert.

Hagsjá bendir á að hlutfall verðtryggða lána er mun hærra en óverðtryggðra, eða um 62 prósent á tímabilinu öllu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×