Háar fyrirgreiðslur Spkef til venslaðra Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. apríl 2014 11:00 Hæsta lán til starfsmanns Spkef nam 73,5 milljónum. Vísir/GVA
Útlán Sparisjóðsins í Keflavík (Spkef) til starfsmanna sinna í lok árs 2007 námu samtals 754 milljónum króna, þar af tæplega 374 milljónir í erlendri mynt. Frá þessu greinir í rannsóknarskýrslu um sparisjóðina. Hæsta útlán til starfsmanns á þessum tíma nam 73,5 milljónum króna. Þegar Fjármálaeftirlitið tók yfir Spkef í apríl 2010 námu heildarútlán til starfsmanna 1.520 milljónum króna, þar af milljarð í erlendri mynt. Þeir tíu starfsmenn sem skulduðu mest hjá Spkef skulduðu samtals tæplega 1,1 milljarð króna eða 72 prósent af öllum lánum til starfsmanna. Eitt stærsta lánamál stjórnarmanns sparisjóðsins varðar Þorstein Erlingsson, stjórnarformann sparisjóðsins í nokkur ár fyrir hrun. Í skýrslunni segir að félag tengd honum hafi notið „stórra fyrirgreiðslna hjá sparisjóðnum.“ Skuldbindingar félags Þorsteins námu 1,6 milljörðum króna í apríl 2010 á sama tíma og tryggingar fyrir skuldbindingum þess voru metnar á 280 milljónir. Annað mál varðar Birgi Þór Runólfsson sem var bæði vara- og aðalmaður í stjórn frá 2007 til 2009, sambýliskonu hans og félög í þeirra eigu. Fyrirgreiðslur til þeirra komu til áður en hann varð stjórnarmaður. Þau fengu lán hjá sparisjóðnum í erlendum myntum að samtals að jafnvirði tæplega 300 milljónum króna til kaupa á stofnfjárbréfum. Flest lánin voru í erlendum myntum með veði í bréfunum. Að auki skoðaði nefndin fyrirgreiðslur til tveggja aðila sem tengdir voru Geirmundi Kristinssyni sparisjóðsstjóra, en um er að ræða tvö börn hans. Þar var ekki gætt reglna sjóðsins við lánveitingar né var þeirra getið á skýrslum sjóðsins til FME. Annars vegar var um að ræða yfirdráttarheimild á reikningi upp á rúmar 50 milljónir króna til kaupa á stofnfjárbréfumm án greiðslumats og aðeins með veði í bréfunum sjálfum. Hins vegar yfirdrátt upp á 22 milljónir sem var endurfjármagnaður með láni í erlendri mynt að jafnvirði 25 milljóna. Samtals námu skuldbindingarnar tæpum 69 milljónum króna við yfirtöku Landsbankans á útlánasafni Spkef.
Mest lesið Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Viðskipti innlent Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Vara við svikaherferð í nafni bankans Viðskipti innlent Endurræsing hafin hjá Norðuráli Viðskipti innlent Ný þjálfun í golfi: „Ég vildi að sjálfsögðu ná meiri árangri“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira