Advania skoðar byggingu nýs gagnavers Haraldur Guðmundsson skrifar 19. mars 2014 07:15 Advania festi kaup á öllu hlutafé í Thor Data Center í nóvember 2011.
Bygging nýs tvö þúsund fermetra gagnavers er til skoðunar innan Advania. Heildarfjárfesting verkefnisins gæti numið tveimur til þremur milljörðum króna og fyrirtækið skoðar nú nokkrar lóðir sem koma til greina. Advania á og rekur gagnaverið Thor Data Center í Hafnarfirði og fyrirtækið gæti á endanum ákveðið að fara einungis í stækkun á því. „Eftirspurnin eftir hýsingu hefur á undanförnum mánuðum verið mun meiri en okkar áætlanir gerðu ráð fyrir. Þar með stöndum við frammi fyrir því að ákveða, mun fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir, með hvaða hætti við stækkum. Ástæða þess að við erum að skoða fleiri valmöguleika en núverandi staðsetningu eru takmarkaðir möguleikar til orkuafhendingar innan þess tímaramma sem við erum að horfa til," segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri hjá Advania og formaður Samtaka íslenskra gagnavera. Thor Data Center er tvö þúsund fermetrar að stærð og gagnaverið kaupir orku af HS Orku. Um 80 alþjóðleg fyrirtæki nýta sér þjónustu Thor og geyma þar hugbúnað, hugbúnaðarkerfi og jafnvel heil tölvukerfi. Stærsti einstaki viðskiptavinurinn er norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software. „Við höfum byggt gagnaverið upp í áföngum. Við verðum hins vegar búin að fullnýta húsnæðið þegar við tökum í notkun fimmta og síðasta áfangann um næstu mánaðamót. Húsnæðið er með pláss fyrir 2,5 megavött af orku eins og það er núna og við höfum nú þegar notað tvö megavött og ég geri ráð fyrir að gagnaverið verði orðið fullt í haust." Viðskiptavinum íslensku gagnaveranna, Thor Data Center og Verne Global á Ásbrú í Reykjanesbæ, fjölgaði mikið á síðasta ári. „Þessi gagnaver voru lengi af stað og menn hálfhlógu að okkur í byrjun þegar við keyptum Thor-gagnaverið. Verne Global var einnig með tóm gagnaver í nokkur ár. Nú er svo komið að þau fyrirtæki sem eru með hýsingu hjá okkur nota meiri internetumferð en öll heimili og fyrirtæki í landinu samanlagt," segir Eyjólfur.
Mest lesið Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Neytendur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Neytendur Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Viðskipti innlent Rammagerðin leitar nauðasamninga Viðskipti innlent Kalla inn súkkulaðbitakökur Neytendur Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Kristinn V. Jóhannsson er látinn Hugrún nýr markaðsstjóri Defend Iceland Kaupa allt hlutafé í Nicetravel Fluttu eitt prósent færri farþega en í júní á síðasta ári Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Sjá meira