Viðskipti innlent

Telja að vextir verði óbreyttir

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Seðlabanki Íslands.
Seðlabanki Íslands. Vísir/GVA
Greiningardeildir viðskiptabankanna þriggja spá óbreyttum stýrivöxtum Seðlabankans á næsta vaxtaákvörðunardegi, 19. mars. Bankarnir gáfu allir út spá sína um stýrivexti í gær.

Breytt vaxtastig yrði að mati greiningardeildar Arion „sögulegur viðsnúningur“ í afstöðu peningastefnunefndar milli funda.

Greining Íslandsbanka telur tóninn í yfirlýsingu nefndarinnar kunna að breytast úr vaxtahækkunartóni „í að nefndin opni á hugsanlega vaxtalækkun á næstu mánuðum“.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×