Viðskipti innlent

Stækka skuldabréfaflokk

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Vísir/GVA
Landsbankinn lauk í gær sölu á óverðtryggðum flokki sértryggðra skuldabréfa sem skráður er í Kauphöllina.

Samkvæmt tilkynningu frá bankanum var útgáfan, LBANK CB 16, stækkuð um 1,5 milljarða króna á ávöxtunarkröfunni 6,4 prósent. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1,92 milljarða króna í sama flokki og nemur því heildarstærð flokksins 3,42 milljörðum.

Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta í Kauphöllinni þann 18. mars en Straumur fjárfestingabanki sinnir viðskiptavakt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×