Forval á verslunar- og veitingarekstri Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 12. mars 2014 07:00 Sérverslanir munu annast sölu í einstökum verslunareiningum eða stærri deildaskiptum einingum með "búð í búð“-tilhögun. Vísir/Anton
Stjórn Isavia hefur ákveðið að efna til forvals á verslunar- og veitingarekstri í brottfararsal Leifsstöðvar. Um leið verður ráðist í breytingar á brottfararsal flugstöðvarinnar og þjónustan endurskipulögð. „Framboð verslana- og veitinga hefur mikil áhrif á ánægju farþega og heildarupplifun af flugvellinum. Endurhönnun brottfararsvæðisins mun taka mið af því að hlutfall erlendra ferðamanna er að aukast mikið. Íslensk náttúra og menning verða í forgrunni til að gera ferð farþega eftirminnilega og öðruvísi en á öðrum flugvöllum,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugstöðvarinnar, í samtali við Markaðinn. Í fyrra lögðu alls um 2,8 milljónir farþega leið sína um völlinn og spáð er 18 prósenta fjölgun á yfirstandandi ári. Þá er áætlað að farþegafjöldinn verði orðinn rúmar fimm milljónir árið 2020. Forvalið mun eingöngu ná til sérverslana og veitingastaða en ekki vöruflokka Fríhafnarinnar, sem mun sem fyrr hafa með höndum sölu á áfengi, tóbaki, sælgæti, ilm- og snyrtivörum ásamt öðru. „Við höfum sent út fréttatilkynningar erlendis og þegar er komið mikið af fyrirspurnum frá verslunum og veitingastöðum sem eru í rekstri á öðrum erlendum flugvöllum,“ segir Hlynur en getur þó ekki gefið upp hvaða aðilar það eru að svo stöddu. Kynningarfundur vegna útboðsins verður haldinn í Hörpu 19. mars en þar verða forvalsgögn til sölu og kosta 15 þúsund krónur.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira