Álverið greiðir alla raforkuna en notar aðeins hluta hennar Haraldur Guðmundsson skrifar 8. mars 2014 08:00 Álverið kemur til með að nota um 60 megavött af þeim 75 sem samið var um. Vísir/Daníel
Rio Tinto Alcan þarf að greiða Landsvirkjun fyrir nánast alla þá orku sem ný Búðarhálsstöð framleiðir þrátt fyrir að fyrirtækið geti einungis notað um 80 prósent af orkunni. Verðið er trúnaðarmál en orkusamningur fyrirtækjanna var undirritaður árið 2010 og gildir til ársins 2036. Fyrirtækin komust að samkomulagi þegar unnið var að viðamiklum breytingum á álverinu í Straumsvík sem áttu að auka framleiðslugetu þess um tuttugu prósent. Í apríl á síðasta ári kom í ljós að framleiðslan yrði einungis aukin um átta prósent og orkuþörf fyrirtækisins því minni en upphaflega var gert ráð fyrir. Samningurinn mun að sögn Harðar Arnarsonar, forstjóra Landsvirkjunar, standa þangað til fyrirtækin semja um annað. „Rio Tinto er skuldbundið til að taka við orku í samræmi við þann samning og Landsvirkjun að afhenda í samræmi við samninginn og honum hefur ekki verið breytt. Fyrirtækinu ber að greiða fyrir raforku hvort sem það notar hana eða ekki,“ segir Hörður. Raforkan sem virkjanir Landsvirkjunar framleiða fer inn á dreifikerfi Landsnets og þaðan til viðskiptavina. Landsvirkjun tilkynnti í janúar um orkuskerðingu til stórnotenda sem gæti staðið til aprílloka. Skerðinguna má rekja til veðurfars en ákvörðunin hefur meðal annars haft áhrif á rekstur álversins í Straumsvík sem þurfti í kjölfarið að draga úr fyrirhugaðri framleiðsluaukningu. „Það eru takmarkanir fyrir því hvernig við getum fært orku á milli landssvæða, það getur verið gott ástand á einum stað, slakt á öðrum stað. Við lentum í þessu síðastliðið vor, þó ekki hafi komið til skerðingar, þá var næstum farið í þær Austurlandi en á þeim tíma var til orka á Suðurlandi en hún komst ekki austur. Og það eru ekki ósvipaðar aðstæður núna, núna er staðan öfug, það er enn til orka á Austurlandi,“ segir Hörður og bætir því við að það sé mjög mikilvægt fyrir orkufyrirtækin að dreifikerfi Landsnets verði eflt. „Það bætir nýtinguna og eykur afhendingaröryggið. En þetta hefur því miður gengið mjög hægt,“ segir Hörður og bendir á að Landsnet hefur ítrekað reynt að ná fram breytingum sem hafa stoppað í skipulags- eða leyfisferlum. „En við vonum að rofi eitthvað til þar en Landsnet hefur ekki enn fengið nein leyfi,“ segir Hörður.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira