Viðskipti innlent

Hálfur milljarður í afgang

Freyr Bjarnason skrifar
Tæplega hálfur milljarður var í rekstrarafgang.
Tæplega hálfur milljarður var í rekstrarafgang. Fréttablaðið/Pjetur
Rekstrarafgangur Strætó á árinu 2013 nam 496 milljónum króna, sem er um 201 milljón meira en árið á undan.

Í tilkynningu um ársreikning Strætó bs. kemur fram að reksturinn hafi í meginatriðum verið í samræmi við áætlanir.

Á árinu jókst handbært fé um 84 milljónir króna og nam í lok árs um 904 milljónum króna. Þeir peningar verða m.a. notaðir til að fjárfesta í nýjum strætisvögnum og rafrænni greiðslumiðlun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×