Viðskipti innlent

Rándýr skýrslugerð

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Alls hafa rannsóknarskýrslunar þrjár kostað 1.365 milljónir króna.
Alls hafa rannsóknarskýrslunar þrjár kostað 1.365 milljónir króna. Vísir/GVA
Í lok mars 2014 var kostnaður rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir erfiðleika og falls sparisjóðanna 607 milljónir króna. Frá þessu greinir í skýrslunni sjálfri. Skýrslan er 1.867 blaðsíður að lengd sem þýðir að hver síða kostar um það bil 325 þúsund.

Þar af fóru 355 milljónir í launakostnað og 178 milljónir í sérfræðikostnað. Að auki féllu til 67 milljónir í sameiginlegan kostnað rannsóknarnefnda um Íbúðalánasjóð og sparisjóðanna, en þar mun einkum hafa verið að ræða kostnað við húsnæði og annan rekstur.

Fram kemur að nefndarmennirnir þrír hafi stjórnað 53 starfsmönnum og verktökum, auk þess sem þeir hafi sjálfir komið beint að vinnu skýrslunnar á öllum stigum hennar.

Kostnaður við rannsóknarskýrslu um fall bankanna var um 435 milljónir króna á verðlagi áranna 2009 og 2010, sem gera 524 milljónir á verðlagi dagsins í dag.

Kostnaður við rannsóknarnefnd um Íbúðalánasjóð nam 234 milljónum en þeirri skýrslu var skilað síðasta sumar.

Alls nemur því kostnaður vegna rannsóknarnefndanna þriggja rúmlega 1.365 milljónum króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×