Verðbólgumarkmiði Seðlabankans náð Bjarki Ármannsson skrifar 28. febrúar 2014 07:00 Hækkun á matvöruverði mældist 0,7 prósent í febrúar. Verðbólga stendur nú í 2,1 prósenti. Vísir/Vilhelm
Verðbólgumarkmiði Seðlabankans í febrúar hefur verið náð og er útlit fyrir að markmiðið haldist út árið. Verðbólga mælist nú 2,1 prósent og hefur ekki mælst minni síðan í febrúar árið 2011.Þetta kemur fram í frétt Greiningardeildar Íslandsbanka frá því í gær. Hækkun vísitölu neysluverðs í þessum mánuði nam 0,67 prósentum sem er langminnsta hækkun í febrúarmánuði í fimm ár. Hækkunin er auk þess nokkuð undir spám greiningaraðila, sem flestir spáðu 0,7 til 0,8 prósenta hækkun. Lítil hækkun vísitölunnar í febrúar er meðal annars talin stafa af lækkun markaðsverðs á íbúðarhúsnæði og verðlækkun matvara, en lækkun matvöruverðs milli mánaða hefur ekki mælst minni síðan í ágúst 2012. Einnig voru áhrif útsöluloka mun vægari en undanfarin ár og skýringin talin styrking krónunnar undanfarna mánuði. Sé húsnæði undanskilið í vísitölunni, mælist verðbólga 0,8 prósent og hefur ekki verið minni á þeim kvarða síðan í ágúst 2007. Greiningardeild segir útlit fyrir að verðbólga haldist við markmiðið það sem eftir er árs. Rætist sú spá yrði það í fyrsta sinn undanfarinn áratug sem verðbólgumarkmið Seðlabankans næst í svo langan tíma.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira