Tap á áframhaldandi starfsemi Bakkavarar Óli Kristján Ármannsson skrifar 20. febrúar 2014 07:00 Ný ársskýrsla Bakkavarar
Breska matvælavinnslufélagið Bakkavör hagnaðist um 7,8 milljónir punda á síðasta ári, eða sem svarar 1.469 milljónum íslenskum krónum. Fram kemur í nýbirtum ársreikningi að hagnaðaraukning milli ára er nærri fjórföld, en árið 2012 nam hagnaður félagsins 2,1 milljón punda, eða sem svarar 395 milljónum króna. Tap er þó af áframhaldandi starfsemi hjá félaginu samkvæmt ársreikningnum upp á 11,6 milljónir punda, eða tæpa 2,2 milljarða króna. Þar vegur þungt afskrift viðskiptavildar upp á 21,2 milljónir punda (tæpa fjóra milljarða króna). Á móti kemur svo hagnaður af aflagðri starfsemi, en í aprílbyrjun gekk í gegn sala á starfsemi félagsins í Frakklandi og á Spáni sem samið var um seinni hluta nóvembermánaðar 2012. Fyrir starfsemina sem var seld fengust 28 milljónir punda, eða tæpir 5,3 milljarðar króna.Stjórn félagsins leggur ekki til arðgreiðslu vegna ársins 2013, en stærstu eigendur félagsins eru bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir. Í tilkynningu með ársreikningi er haft eftir Ágústi Guðmundssyni, forstjóra Bakkavarar, að samstæðan hafi komist vel á veg í að ná markmiðum sínum á árinu. Lokið hafi verið farsællega við endurfjármögnun, eignir utan Bretlandseyja verið seldar og endurskipulagningu lokið á hluta starfseminnar sem lítið hafi gefið af sér. Þessum verkefnum hafi verið lokið á sama tíma og tekjuaukning samstæðunnar hafi verið umfram það sem gengur og gerist á markaðnum og framlegð hafi verið varin fyrir umtalsverðri verðbólgu hráefniskostnaðar.
Mest lesið Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Neytendur eigi meira inni Neytendur Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Strætómiðinn mun kosta 690 krónur eftir áramót Neytendur Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira