Klettur vill tryggja fjölskyldum langtímaleigu Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 20. febrúar 2014 09:13 Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Kletts leigufélags, segir félagið ekki tjalda til einnar nætur. Vísir/GVA
Húsnæði Íbúðalánasjóður hefur selt 517 íbúðir til Leigufélagsins Kletts ehf., sem sjóðurinn stofnaði fyrir ári, en rekstur þess er sjálfstæður. Rúmur helmingur íbúðanna er á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum. „Við erum félag sem hefur það hlutverk að bjóða einstaklingum og fjölskyldum trygga leigu með áherslu á langtímahugsun. Leigjandinn getur gert ráð fyrir að hafa viðkomandi húsnæði til afnota til lengri tíma en áður hefur þekkst enda tjöldum við ekki til einnar nætur,“ segir Bjarni Þór Þórólfsson, framkvæmdastjóri Kletts. Sótt er um íbúðirnar á heimasíðu Kletts og leigumiðlunarsíðum. Ef fleiri en einn sækir um íbúð er dregið úr öllum umsóknum sem borist hafa í eignina. „Flestar þessara 517 íbúða eru nú þegar í útleigu. Það er þó alltaf einhver hreyfing.“ Almennt eru gerðir ótímabundnir leigusamningar með sex mánaða uppsagnarfresti. Spurður um leiguverð segir Bjarni að notast sé við hugtakið sanngjörn markaðsleiga við ákvörðun á leiguverði. Sem dæmi auglýsir félagið 41 fermetra íbúð í Fannborg í Kópavogi á 83 þúsund krónur. Bjarni getur ekki svarað hvort eða hvenær fleiri íbúðir komi á skrá leigufélagsins en samkvæmt mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs átti sjóðurinn 2.117 fullnustueignir í lok janúarmánaðar 2014, fyrir utan íbúðir sem seldar voru til Kletts.
Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent