Neita ekki að afhenda gögn Freyr Bjarnason skrifar 18. febrúar 2014 16:43 Upplýsingafulltrúi Vodafone segir fyrirtækið hafa óskað eftir upplýsingum frá öðrum símafyrirtækjum. Vísir/Vilhelm
Hrannar Pétursson, upplýsingafulltrúi Vodafone, segir það af og frá að fyrirtækið neiti að afhenda gögn vegna fyrirhugaðrar hópmálssóknar Málsóknarfélagsins gegn fyrirtækinu. Skúli Sveinsson hjá Málsóknarfélaginu hélt því fram í Fréttablaðinu í gær að fyrirtækið vilji bara afhenda gögn til núverandi viðskiptamanna. „Frá því að það var brotist hér inn höfum við markvisst unnið að því að koma gögnum til þeirra sem hafa óskað eftir gögnum sem tengjast símanúmerum þeirra sjálfra,“ segir Hrannar. „Við verðum að sjálfsögðu að gera það með réttum hætti og eingöngu að láta umbeðnar upplýsingar í hendur rétthafa hvers númers. Það er einfalt fyrir okkur að staðreyna hver er skráður rétthafi þeirra símanúmera sem við erum að þjónusta. En við höfum ekki upplýsingar um skráða réttahafa númera hjá öðrum símafyrirtækjum þannig að við erum háðir upplýsingum frá þeim varðandi það,“ bætir hann við. Hrannar segir Vodafone því þurfa að óska eftir staðfestingu um rétthafa þaðan og að almennt hafi fyrirtækin brugðist vel við. „En það eru þó nokkur tilvik þar sem símafélag hefur ekki svarað erindum okkar þrátt fyrir ítrekanir.“ Aðspurður segir hann þær fyrirspurnir vera allt að nokkurra vikna gamlar.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Spænskt félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bein útsending: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Fleiri fréttir Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira