Kerfi Advania í flugmóðurskipum breska hersins Haraldur Guðmundsson skrifar 19. febrúar 2014 07:00 Gestur G. Gestsson forstjóri Advania og Reg Curtis forstjóri NAAFI þegar samningurinn var undirritaður. Mynd/Advania „
Samningurinn þýðir að við munum sjá um upplýsingakerfi bresku samtakanna á öllum þeim stöðum þar sem breski herinn er með aðsetur, hvort sem það er í Þýskalandi, Afganistan, á Falklandseyjum eða um borð í breskum flugmóðurskipum,“ segir Eyjólfur Magnús Kristinsson, framkvæmdastjóri rekstrarlausna Advania. Fyrirtækið gerði í lok janúar samning við bresku samtökin NAAFI (The UK Navy, Army and Air Force Institutes), sem sjá um veitingaþjónustu og rekstur smásöluverslana fyrir breska heraflann, um að Advania hýsi, reki og endurskipuleggi allt upplýsingakerfi NAAFI. Samningurinn gildir til ársins 2019 og virði hans er um einn milljarður króna. „Samtökin ákváðu á síðasta ári að gjörbylta sínu upplýsingakerfi því það þótti of stórt og dýrt. Farið var í útboð sem við tókum þátt í og þar vorum við langhlutskörpust. Við erum að leysa af hólmi tuttugu manna tölvudeild NAAFI með því að sinna störfunum hér á Íslandi með færra starfsfólki.“ Hugbúnaður upplýsingakerfisins er nú hýstur í Thor Data Center, gagnaveri Advania. Eyjólfur segir stjórnendur NAAFI hafa lagt mikla áherslu á að hugbúnaðurinn yrði geymdur í gagnaveri sem notar endurnýjanlega orkugjafa. „NAAFI voru stofnuð af breska hernum árið 1921 en eru í dag eins konar sameignarfélag sem rekur veitingastaði, verslanir, keilusali og aðra þjónustu fyrir breska hermenn. Eitt af kerfunum sem samtökin kaupa af okkur, Navision, heldur utan um allan þeirra fjárhag, innkaup og posaviðskipti. NAAFI voru áður með sex til sjö kerfi en Navision kom í stað þeirra allra.“ Eyjólfur segir samninginn vera mikilvægt skref fyrir innlend upplýsingafyrirtæki. „Það hefur stundum verið sagt að það sé erfitt að reka svona almenn tölvukerfi frá Íslandi út af fjarlægðum. En þarna erum við að reka hefðbundin kerfi sem eru öll staðsett á Íslandi og fara í gegnum þær gagnatengingar sem eru í boði frá landinu. Og þetta bara svínvirkar sem er ótrúlega gott dæmi um að það er hægt að reka svona kerfi frá Íslandi.“
Mest lesið Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent