Viðskipti innlent

Beðið eftir ákvörðun um hlutafjárútboð Alibaba

Haraldur Guðmundsson skrifar
Fyrirtækið er með um 24 þúsund starfsmenn.
Fyrirtækið er með um 24 þúsund starfsmenn. Mynd/AFP
Líklegt þykir að stjórnendur kínverska netrisans Alibaba Group, sem meðal annars á sölusíðuna AliExpress, ákveði að skrá fyrirtækið á markað á árinu. Afkoma Alibaba á þriðja ársfjórðungi 2013, þegar reksturinn skilaði tekjum upp á 1,78 milljarða Bandaríkjadala, um 204 milljarða króna, þótti renna stoðum undir fyrri spár sérfræðinga á hlutabréfamarkaði um að hlutafjárútboð væri á næsta leiti. Útboðið yrði að öllum líkindum það stærsta síðan Facebook fór á markað vorið 2012.

Þriðji ársfjórðungur síðasta árs var fjórði fjórðungurinn í röð þar sem Alibaba skilaði meiri hagnaði en síðustu þrjá mánuðina á undan. Fyrirtækið hagnaðist þá um 801 milljón dala, um 92 milljarða króna. Bæði Ebay og Facebook skiluðu minni tekjum en Alibaba á fjórðungnum og Amazon var rekið með tapi.

Alibaba er nú verðmetið á um 190 milljarða Bandaríkjadala, um 22 þúsund milljarða króna. Facebook var metið á 104 milljarða dala fyrir hlutafjárútboðið 2012. Alibaba er því annað verðmætasta netfyrirtæki heims á eftir Google.

Jack Ma, 49 ára gamall fyrrverandi enskukennari og einn ríkasti maður heims, stofnaði fyrirtækið árið 1999. Hann hefur frá þeim tíma byggt upp netveldi sem rekur margar ólíkar sölusíður á borð við Taobao Marketplace og Tmall.com. Hann hætti sem forstjóri fyrirtækisins í maí á síðasta ári en hann er sagður vera enn við stjórnvölinn.

Ma er sagður horfa á hlutafjárútboð Twitter frá því í nóvember síðastliðnum sem einhvers konar mælikvarða á eftirspurn fjárfesta eftir hlutabréfum í tæknifyrirtækjum. Spár sérfræðinga gera ráð fyrir að hlutafjárútboðið geti skilað fyrirtækinu um fimmtán milljörðum dala, um 1.700 milljörðum króna. Að lokum velta sérfræðingarnir fyrir sér hvort Ma og félagar hans ákveði að skrá fyrirtækið vestanhafs eða í Hong Kong. Líklegt þykir að New York verði fyrir valinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×