Viðskipti innlent

Ársverðbólga komin í 3,1 prósent

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar og hefur það nokkur áhrif á verðbólguvísitöluna.
Verð á fatnaði og skóm lækkaði í janúar og hefur það nokkur áhrif á verðbólguvísitöluna. Vísir/Vilhelm
Ársverðbólga lækkaði um 1,1 prósentustig milli mánaða í janúar, úr 4,2 prósentum í 3,1 prósent. Hagstofan birti janúarmælingu vísitölu neysluverðs í gær og lækkaði vísitalan um 0,7 prósent milli mánaða.

Lækkunin í janúar var meiri en opinberar spár gerðu ráð fyrir, en þær lágu á bilinu 0,3 til 0,5 prósent. Hagfræðideild Landsbankans segir spáskekkju opinberra spáa hafa farið vaxandi frá því í haust.

Í janúar hafa útsölur jafnan mest áhrif, fatnaður og skór lækkuðu um 10,8 prósent og húsgögn og heimilisbúnaður um 2,8 prósent. Flugfargjöld til útlanda lækkuðu einnig um 14,6 prósent og eldsneyti um 2,5 prósent.

Helstu hækkunarvaldar í janúar voru húsnæðisliðurinn og hækkun gjaldskráa ýmissa fyrirtækja og stofnana.

Gengisvísitala krónunnar hefur lækkað um 5,0 prósent frá því í nóvember, meðal annars vegna inngripastefnu Seðlabankans. Einnig hefur bensínverð verið á niðurleið. Þessi þróun er einnig greinileg þegar litið er á samsetningu verðbólgunnar. Innlend þjónusta og húsnæðisverð skýra 80 prósent af verðbólgunni í janúar.

Þessir liðir vega 52 prósent af vísitölunni og því er verðbólgan að mestu leyti innlend, að sögn hagfræðideildar Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×