Sýningar Mið-Íslands mala gull Haraldur Guðmundsson skrifar 25. janúar 2014 08:00 Þeir Dóri DNA, Björn Bragi Arnarsson, Ari Eldjárn, Bergur Ebbi Benediktsson og Jóhann Alfreð Kristinsson eiga fimm ára starfsafmæli. Vísir/Valli
Um sex þúsund miðar hafa selst á sýningar uppistandshópsins Mið-Ísland í Þjóðleikhúskjallaranum frá því miðasala hófst í byrjun janúar. Miðasalan hefur skilað á bilinu þrettán til átján milljónum króna samkvæmt miðaverði Miði.is. Fimmmenningarnir sem mynda hópinn hafa þó ekki enn slegið eigið met frá því í fyrra þegar um tíu þúsund gestir sáu sýningar þeirra. „Þetta er ágætis upphæð en við vorum með 38 sýningar í fyrra og það stefnir í hátt í fimmtíu núna ef það heldur áfram að ganga svona vel. En maður er ekkert að fara að kaupa sér nýjan bíl fyrir þetta því við erum með fólk í vinnu og svo deilist þetta í fimm hluta,“ segir Halldór Halldórsson, betur þekktur sem Dóri DNA. Nýhafin sýningaröð hópsins er sú þriðja í röðinni og Mið-Ísland fagnar nú fimm ára starfsafmæli. „Við byrjuðum á Prikinu og þá var frítt inn og fyrir tveimur árum fórum við yfir í Þjóðleikhúskjallarann og síðan á stóra svið leikhússins. Í fyrra færðum við okkur alfarið niður í kjallarann af því húsnæðið er einstaklega hentugt.“ Dóri segir að sýningarnar muni að öllum líkindum enda í mars því honum skilst að Þjóðleikhúskjallarinn sé bókaður eftir það. „Í fyrra vorum við farnir að teygja okkur fram í apríl. En við erum auðvitað rosalega þakklátir fyrir viðtökurnar og þetta er alveg það skemmtilegasta sem maður gerir að fá að grínast í þessum kjallara þegar maður er að skemmta fyrir fólk sem er þangað komið til að sjá grín.“ Fimmmenningarnir sinna allir öðrum verkefnum á meðan á sýningunum stendur. Halldór er sjálfur í pistlaskrifum og að vinna í leikhúsi. „Þannig að þetta vex og vex og menn eru svolítið að uppskera eins og þeir sáðu. Það fer mikil vinna í þetta, maður er alltaf að meitla efnið. Sumir vilja meina að grínistaefni sé eins og naglasúpa, þú setur nagla í og eyðir svo vetrinum í að bæta hráefnum út í hana og þú veist ekki hvernig hún varð til en hún er samt djöfulli bragðgóð.“
Mest lesið Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Sjá meira