Viðskipti innlent

Seldu bréf fyrir 1,3 milljarða

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Frá skráningu TM í í fyrravor. Sigurður Viðarsson forstjóri hringir inn viðskiptin.
Frá skráningu TM í í fyrravor. Sigurður Viðarsson forstjóri hringir inn viðskiptin. Fréttablaðið/Stefán
Eignarhaldsfélagið Stoðir hefur selt allan hlut sinn í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM). Ríflega 5,5 prósenta hlutur Stoða í TM var seldur í útboði sem lauk síðdegis á fimmtudag.

Boðin var til sölu tæplega 42,1 milljón hluta og samþykkt voru tilboð á bilinu 31,5 til 32,56 krónur á hlut, að því er fram kemur í tilkynningu til Kauphallar.

Heildarsöluverðmæti útboðsins var 1.341,2 milljónir króna.

„Gjalddagi og eindagi greiðslu vegna útboðsins er klukkan 16:00 þann 21. janúar 2014 og verða hlti í Tryggingamiðstöðinni hf. afhentir kaupendum sama dag,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×