Viðskipti innlent

Hér þarf síður að búa til útlitsgalla

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Sums staðar er talið geta ýtt undir ranghugmyndir um fjöldaframleiðslu og færibönd ef skyndibiti er of einsleitur. Pizza Hut hefur gripið til sinna ráða.
Sums staðar er talið geta ýtt undir ranghugmyndir um fjöldaframleiðslu og færibönd ef skyndibiti er of einsleitur. Pizza Hut hefur gripið til sinna ráða. Fréttablaðið/E.Ól.
Tilmæli aðalstöðva Pizza Hut í Bandaríkjunum eru að vísvitandi skuli gera misfellur í útliti á pizzum sem seldar eru undir merkjum fyrirtækisins. Fréttaveita AP segir að merki um þetta kunni að vera loftbólur og ostslettur á skorpu, allt til þess að undirstrika að flatbökurnar séu búnar til á staðnum.

AP hefur eftir Carrie Walsh, yfirmarkaðsstjóra Pizza Hut, að nú sé hluti af þjálfun nýs starfskrafts að innræta „aukið frelsi“ þegar flattir eru út pizzubotnar. Kökukefli hafa til dæmis verið gerð útlæg.

Markmiðið er að maturinn líti betur út og hafi ekki á sér það yfirbragð að hafa komið af færibandi einhvers staðar. Sums staðar í heiminum hefur þess orðið vart að fólk snúi baki við unninni matvöru og skyndibita sem þyki einsleitur og hafi ávallt sömu lögun.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri Pizza Hut á Íslandi og í Finnlandi, segir tilmæli markaðsdeildar höfuðstöðva Pizza Hut í Bandaríkjunum eiga misvel við eftir markaðssvæðum.

Þórdís Lóa ÞórhallsdóttirFréttablaðið/Anton
„Hjá okkur, og í báðum löndum, er hver einasta pizza búin til í höndunum, en þetta eru áhyggjur sem þeir hafa haft í Bandaríkjunum og í Kína,“ segir Þórdís Lóa og kveðst efast um að hér hafi nokkrum manni dottið í hug að pizzur fyrirtækisins kæmu frosnar og tilbúnar. 

„Hins vegar þegar koma línur um eitt og annað frá Pizza Hut þá fylgjum við því ef það á við markaðinn sem við erum á,“ segir Þórdís Lóa. 

Pizza Hut sé gríðarlega stórt, eitt af hundrað þekktustu vörumerkjum heim og með um fimmtán þúsund sölustaði um heim allan. Í slíku umfangi geti komið upp ólíkir hlutir sem taka þurfi á. 

Þannig hafi Kínverjar þurft að taka niður salatbari og hætta með hádegishlaðborð vegna hamsturs viðskiptavina. „Þá kom kannski einhver og bjó til fjall úr salatskálunum og svo borðaði heil fjölskylda af því.“

Sem dæmi um fylgni við alþjóðlega staðla Pizza Hut bendir Þórdís Lóa á að núna sé verið að ljúka innleiðingu á þjálfunarkerfi sem búið sé að myndgera í tölvu. 

„Svolítið eins og verið sé að leika tölvuleik. Þetta kemur beint frá Dallas og fer þvert yfir allan heiminn.“ 

Hér heima er sem stendur einn Pizza Hut veitingastaður, en úti í Finnlandi rekur Þórdís Lóa níu staði. Hún segir þó ekki loku fyrir það skotið að stöðum fjölgi á Íslandi eftir því sem hagkerfið réttir úr kútnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×