Segja forsætisráðherra hafa skaðlegt viðhorf Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 17. janúar 2014 10:15 Það ríkti samhugur hjá fundarmönnum um að nauðsynlegt væri að laða að erlenda fjárfestingu til landsins. Vísir/Stefán „
Viðhorf forsætisráðherra gagnvart erlendri fjárfestingu elur á tortryggni,“ sagði Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagsdeildar Samtaka atvinnulífsins, í pallborði í gær á opnum morgunfundi samtakanna um beina erlenda fjárfestingu. „Það er eins og Íslendingar óttist alltaf að fjárfestar sem koma hingað til landsins ætli sér að taka allan arð sinn úr landi og skilja ekkert eftir. Auðvitað vænta fjárfestar þess að taka til sín einhvern arð, en það gleymist hins vegar að það verður alltaf virðisauki eftir í landinu, svo sem skatttekjur, aukin atvinna og launatekjur og kaup á innlendum afurðum. Ummæli forsætisráðherra um að erlend fjárfesting sé eins og erlend lántaka eru einfaldlega skaðleg,“ sagði Ásdís enn fremur á fundinum. Annar aðalframsögumanna fundarins var Írinn Frank Barry, prófessor í alþjóðaviðskiptum við Trinity-háskólann í Dublin. Hann sagði frá reynslu Íra í þessum efnum. Barry sagði erlenda fjárfestingu þar hafa byrjað árið 1956 þegar fyrirtækjaskattur var fyrst lækkaður í landinu. „Hagkerfi sem hafa talið það nýtast sér að lækka fyrirtækjaskatta eru oftast lítil jaðarhagkerfi sem iðnvæddust seint. Erlend fjárfesting er mikilvægari fyrir slík hagkerfi sem oft velja því að lækka slíka skatta,“ sagði Barry í erindi sínu og vildi meina að saga Írlands gæti gagnast Íslendingum.Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, tók í sama streng og Ásdís. „Mér finnst það sláandi að við séum stödd á sama stað og Írar voru árið 1956. Við erum samfélag sem er dauðhrætt við erlenda fjárfesta, teljum það vera einhvers konar ásælni að vilja koma hingað,“ sagði Kristrún. Hún sagði nauðsynlegt að breyta umræðunni. „Það þarf að breyta þessu viðhorfi, við förum alltaf út í að segja draugasögur eða tröllasögur af útlendingum,“ sagði Kristrún.Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi, tók dæmi af Möltu þar sem stjórnvöld hafi sett sér skýra stefnu um að laða að sér erlenda fjárfesta. Um tólf mismunandi lyfjafyrirtæki hafa ákveðið að setja upp verksmiðjur eða þróunarstarfsemi þar í landi, þar á meðal Actavis. „Það er ljóst að Ísland hefði ekki orðið fyrir valinu hjá eigendum fyrirtækisins ef það væri sett á laggirnar í dag,“ sagði Guðbjörg.Írland Frank Berry prófessor sagðist vonast til þess að reynsla Íra af erlendri fjárfestingu gæti gagnast Íslendingum. Fréttablaðið/Stefán
Mest lesið Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Furstadæmin yfirgefa OPEC Viðskipti erlent Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Viðskipti innlent Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Samstarf Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Fleiri fréttir Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Sjá meira