Þarf bara að hafa hugmynd Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 16. janúar 2014 08:00 Starfsmönnum Meniga hefur fjölgað úr fjórum upp í tæplega 70 frá því á árinu 2009 þegar þeir tóku þátt í Gullegginu. Fréttablaðið/ Gunnar Freyr Steinsson
Frumkvöðlakeppnin Gulleggið er í fullum gangi en frestur til að skila inn hugmyndum í keppnina er til og með mánudagsins 20. janúar næstkomandi. Klak Innovit stendur árlega fyrir keppninni sem hófst árið 2008 og er meginmarkmið hennar að skapa vettvang fyrir ungt athafnafólk til að öðlast þjálfun og reynslu í mótun nýrra viðskiptahugmynda og rekstri fyrirtækja. Síðan keppnin var fyrst haldin hafa borist 1.326 hugmyndir og hafa mörg þekkt sprotafyrirtæki tekið sín fyrstu skref í Gullegginu, meðal annars Meniga, Clara, Karolina Fund, Nude Magazine og fleiri. „Keppnin er öllum opin, í rauninni þarf fólk bara rétt að hafa hugmynd og senda inn stutta lýsingu á henni og fær þá þátttökurétt í keppninni. Fólk þarf ekki að kunna neitt, það þarf bara að hafa áhuga og vera tilbúið til að takast á við þessa áskorun að vera með í keppninni,“ segir Stefán Þór Helgason, verkefnastjóri Gulleggsins. Hann segir öllum þátttakendum bjóðast að sitja námskeið þar sem þeir fái aðstoð frá sérfræðingum, reyndum frumkvöðlum, með að koma hugmynd sinni á koppinn. „Allir sem lesa yfir hugmyndirnar eru bundnir trúnaði þannig að það þarf enginn að vera hræddur um að hugmyndum verði stolið taki þeir þátt,“ segir Stefán. Í ár verður bryddað upp á þeirri nýjung að bjóða fólki að skrá sig án hugmyndar. „Fólk getur skráð sig af einskærum áhuga, hafi það einhverja sérstaka hæfileika eða hæfni, til dæmis viðskiptafræðingar, lögfræðingar, grafískir hönnuðir eða hvaðeina. Það þarf bara að vera tilbúið að taka þátt í þessu ferli og hjálpa þá þeim sem hafa hugmyndir og koma inn í slík teymi,“ segir Stefán.Viggó Ásgeirsson er einn stofnenda Meniga, sem tók þátt í keppninni árið 2009. Hugmynd þeirra hlaut ekki verðlaunasæti en Viggó segir það ekki endilega segja til um árangur hvar menn lenda í keppninni heldur lærdómurinn sem situr eftir. „Það er mjög góð og lærdómsrík reynsla fyrir fyrirtæki sem eru að stíga sín fyrstu skref á sviði nýsköpunar að fara í gegnum þetta ferli. Aðallega er það lærdómsríkt þegar maður fer í svona keppni að þurfa að móta hugmyndina sína, búa til viðskiptaáætlun og ekki síst mikilvægt að þurfa síðan að kynna áætlunina fyrir væntanlegum fjárfestum,“ segir Viggó. „Við höfum alla tíð síðan litið á Klak Innovit sem nokkurs konar guðforeldri okkar af því Innovit hýsti okkur í Tæknigarði fyrsta árið okkar, við vorum þar í pínulítilli skrifstofu, um 20 fermetrum, en höfum síðan flutt okkur í 600 fermetra. Við nutum verulega góðs af þessu framtaki frumkvöðlasetranna og höfum því aldeilis vaxið síðan,“ segir Viggó. Keppnin orðin gæðastimpill á viðskiptahugmyndir og fyrir frumkvöðla sem munu á næstu árum laða að enn fleiri styrki, fjárfesta, skapa ný störf og verðmæti fyrir íslenskt þjóðfélag.
Mest lesið Slúbbertar og enn verri sögur, afreksfólk og ástin Atvinnulíf Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Neytendur eigi meira inni Neytendur Algengustu áramótaheitin 2026 og góð ráð til að standa við þau Atvinnulíf Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Viðskipti innlent Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn Atvinnulíf Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Viðskipti innlent Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma Viðskipti innlent Fleiri fréttir Úrvalsvísitalan lækkaði á nýliðnu ári Þetta var mest skráða einstaka bíltegundin 2025 Landsbjörg innkallar pakka eftir að rakettur sprungu of snemma „Sterkar vísbendingar“ um minni kostnað með nýrri stefnu Aðlaga lánamál ríkisins að breyttum aðstæðum „Hvernig eigum við unglingar að geta keypt okkur fasteign i framtíðinni?“ Fyrirtæki Elds með málmana sem Trump girnist á Grænlandi Sigla til loðnuleitar í fyrstu viku janúar Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Sjá meira